Work

Áhrif þreytu á hlaupahring, hreyfiferla og kraftvægi ökklaliðar hjá kvenhlaupurum

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Að hlaupa í þreyttu ástandi getur hrint af stað keðjuverkandi ferlum sem auka líkurnar á meiðslum. \nMarkmið: Megin markmið rannsóknarinnar er að auka skilning á því hvaða breytingar verða á hlaupahring, hreyfiferlum og kraftvægi ökkla hjá kvenkyns hlaupurum þegar þeir þreytast við hlaup á hlaupabretti rétt fyrir ofan mjólkursýruþröskuldinn. Markmið rannsóknarinnar er einnig að skoða hvort aðrar breytingar og/eða ósamræmi milli fóta eigi sér stað hjá hlaupurum með mismunandi reynslu. \nAðferðir: Rannsóknin var framkvæmd á 17 kvenkyns sjálfboðaliðum á aldrinum 23-40 ára sem hlupu reglulega sér til heilsubótar í skipulögðum hlaupahópum á höfuðborgarsvæðinu. Þeim var skipt í tvo reynsluflokka, þ.e. reyndir (+5 ár, n=8) og óreyndir (-5 ár, n=9). Þátttakendur mættu tvívegis í mælingu. Í fyrri mælingunni var mjólkursýruþröskuldurinn mældur með hlaupaprófi. Í seinni mælingunni voru breytingar á hreyfiferlum og kraftvægi rannsakað. Endurskinskúlur voru festar á valin landamerki. Þátttakendur hlupu síðan eins lengi og þeir mögulega gátu á hraða sem var 0,2 m/s fyrir ofan þeirra áætlaða mjólkursýruþröskuld. Notast var við þrívíddar hreyfigreiningarkerfi til þess að safna gögnum og greina. Við tölfræðigreiningu var notast við fjölþátta blandaða dreifnigreiningu. \nNiðurstöður: Lóðrétti gólfkrafturinn og kraftvægið um ökkla jókst við lendingu fótar við undirlag með aukinni þreytu hjá báðum reynsluflokkum (p<0,001), þó töluvert meira hjá óreyndu hlaupurunum. Meira ósamræmi var í hreyfiferlum á milli fóta innan reynsluflokksins óreyndir samanborið við reynsluflokkinn reyndir. Hlaupahringur lengdist marktækt með aukinni þreytu hjá báðum reynsluhópum. Breytingar komu marktækt (p<0,001) fyrr fram í hlaupahring hjá óreyndu hlaupurunum miðað við þá reyndu. \nÁlyktun: Báðir reynsluflokkar eru í aukinni meiðslahættu vegna aukningar á lóðréttum gólfkrafti við lendingu fótar á undirlagi, óreyndu hlaupararnir eru þó í meiri meiðslahættu. Óreyndu hlaupararnir eru líklega í meiri meiðslahættu miðað við reyndu hlauparana m.a. vegna ósamræmis milli fótleggja. Hlaupahringurinn breyttist einnig fyrr hjá óreyndu hlaupurunum miðað við reynda, þ.e. hlaupastíll þeirra breyttist fyrr í þreytuferlinu.
Source: Skemman
Author: Sæmundur Ólafsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035889233
Cites: 134
Cited by: 4
Related to: 10