Áhrif tíðahrings á frammistöðu kvenna í íþróttum : samantekt rannsókna með áherslu á knattspyrnu
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Flestar konur hafa stundað íþróttir á einhverjum tímapunkti á æviskeiði sínu. Að því sögðu hafa allar konur upplifað tíðahringinn eftir ákveðinn aldur. Konur hafa verið að stunda íþróttir af miklu kappi síðustu áratugi og hefur þátttaka þeirra í ýmsum íþróttum aukist til muna. Því er mikilvægt að velta því fyrir sér hvers vegna enn sé svona mikill munur á milli frammistöðu kynjanna í íþróttum. Hugsanlega getur það meðal annars stafað af mismunandi hormónajafnvægi í líkamsstarfsemi kvenna miðað við karla. Konur hefja tíðablæðingar við ákveðinn aldur og fara þá af stað hormónasveiflur í samræmi við tíðahringinn. Tíðahringnum er skipt upp í ákveðin stig þ.e. eggbússtig og gulbússtig og stundum er einnig talað um egglosstig. Á mismunandi stigum tíðahringsins er svo mismikil framleiðsla og seyting kvenhormóna. Það eru hormón á borð við estrógen og prógesterón sem hugsanlega gætu haft áhrif á frammistöðu kvenna í íþróttum, þar sem þau hafa áhrif á ýmiss efnaskipti líkamans sem og aðra starfsemi hans. Athyglisvert er að skoða hvers konar áhrif þessi hormón hafa á líkamann og hvernig er hægt að hagnýta rannsóknir á þessu sviði til að aðlaga þjálfun íþróttakvenna til samræmis við tíðahringinn til að ná fram hámarksafkastagetu og bæta þannig frammistöðu kvenna í viðkomandi íþrótt.
Source: Skemman
Author: Freyja Friðþjófsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sports, Gender, and Society
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035954056
