Work

Áskoranir stjórnenda við innleiðingu stefnu eftir formbundinni aðferðafræði 4DX og sjálfsprottnu ferli

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknir á mótun stefnu fyrirtækja hafa verið mun meira áberandi en rannsóknir á innleiðingu stefnu. Mótun og innleiðing stefnu ættu að vera jafn mikilvægir þættir, því að mótun stefnu hefur meiri tilgang ef hún er innleidd með árangur í huga. Að innleiða stefnu getur verið þrautin þyngri fyrir stjórnendur og flókið ferli, en ýmsar aðferðir hafa verið hannaðar til að auðvelda stjórnendum verkið. Engin ein aðferð hefur hins vegar orðið ráðandi og ekkert orsakasamband fundist milli framkvæmdar við innleiðingu stefnu og árangurs. Rannsóknir hafa sýnt að fyrirtækjum mistekst oft í yfir 70% tilfella að innleiða nýja stefnu en ástæðan fyrir því eru hinar ýmsu áskoranir sem verða á vegi stjórnenda við gerð stefnu og við framkvæmd innleiðingu hennar. Í þessari rannsókn var innleiðing stefnu hjá tveimur hópum stjórnenda borin saman og reynt að gera grein fyrir hvaða áskoranir urðu á vegi þeirra. Við öflun gagna var stuðst við eigindlega aðferðafræði þar sem hálfopin viðtöl voru tekin við átta viðmælendur. Þeir komu annars vegar frá fyrirtækjum sem innleiddu sína stefnu með sjálfsprottnu ferli án aðferðafræði og hins vegar frá fyrirtækjum sem innleiddu sínar stefnu eftir formbundinni alþjóðlegri aðferðafræði 4DX sem ráðgjafafyrirtækið FranklinCovey International leggur upp með. \nHelstu niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að hópur stjórnenda sem studdist við sjálfsprottna aðferð við innleiðingu stefnu upplifði áskoranir við að gera framtíðarsýnina skiljanlega öllum. Erfitt var að miðla upplýsingum, fylgja stefnu eftir, vita hvenær markmiðum var náð og hafa áhrif á menningu innan fyrirtækja. Á hinn bóginn upplifði hópur stjórnenda sem studdist við formbundna aðferð við innleiðingu stefnu áskoranir við að finna skuldbindingar og verkefni fyrir alla starfsmenn til að geta tileinkað sér nýjar breytingar, innleiða stefnu sem allir starfsmenn tengdu við og gátu þar af leiðandi tileinkað sér, auk skorts á úthaldi við innleiðingu stefnu. Mótspyrna starfsmanna til nýrra stefnu breytinga var eina áskorunin sem kom upp innan beggja hópa óháð hvaða aðferð var stuðst við til innleiðingar stefnu. Niðurstöður þessarar rannsóknar ætti því í framhaldi að geta nýst stjórnendum við ákvarðanatöku, til að vita hvaða aðferð hentar þeirra fyrirtæki og hvaða áskoranir vert er að hafa í huga. Með því móti geta stjórnendur auðveldað sér innleiðingarferlið.
Source: Skemman
Author: Þóra Kristín Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035996486
Cites: 53
Cited by:
Related to: 10