Áverkar aldraðra: Meðferð aldraðra áverkasjúklinga og forgangsröðun. Fræðileg samantekt
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar fjölgar öldruðum sem verða fyrir hverskyns slysum og áverkum. Vegna breytingar á líkamsstarfsemi með hækkandi aldri, heilsufarssögu og sjúkdómsbyrði er margt sem þarf að hafa í huga við hjúkrun aldraðra eftir áverka samanborið við yngri sjúklinga. Ónákvæm forgangsröðun aldraðra á bráðamóttökum er þekkt vandamál í heilbrigðiskerfinu. Slíkt getur leitt til tafar á nauðsynlegri þjónustu og skipt sköpun í meðferð. Aldraðir eru fjölbreyttur hópur og oft með sérstöðu og fyrri greiningar sem taka þarf tillit til í meðferð þeirra. Markmið: Annars vegar að skoða hvað rannsóknir segja um hvað þarf að hafa í huga við meðferð á öldruðum eftir áverka og hins vegar að reyna að varpa ljósi á það hvort og hvernig hægt er að bæta forgangsröðun aldraðra. Aðferð: Fræðileg samantekt eftir leit í PubMed að rannsóknum frá 1. Janúar 2017-1. maí 2020. Inntökuskilyrði voru að rannsóknin fjallaði á einn eða annan hátt um aldraða, færi fram á bráðamóttöku eða sambærilegri deild og rannsókn væri frá landi með heilbrigðiskerfi sem væri áþekkt því sem þekkist á Íslandi Niðurstöður: Níu rannsóknir stóðust inntökuskilyrði. Fimm þeirra fjölluðu um forgangsröðun aldraðra og fjórar um meðferð hjá öldruðum eftir áverka. Niðurstöður bentu á að 22,5% allra sjúklinga sem leita á bráðamóttöku voru 85 ára eða eldri, aldraðir fengu oftar ranga sjúkdómsgreiningu og síðar en yngri sjúklingar og voru líklegri til að vera ranglega forgangsraðaðað. Meirihluti þeirra rannsókna sem kannaðar voru í samantektinn einblíndu á afdrif sjúklinga en lögðu ekki til lausnir á vandanum. Ályktun: Viðtekin forgangsröðun og meðferð aldraðra eftir áverka reyndist ekki alltaf leiða til bestu útkomu en íhlutunarranssóknir benda til að hægt sé að bæta afdrif aldraðra með skjótum viðbrögðum. Þörf er á frekari rannsóknum með íhlutunum og samanburði til að geta bætt þjónustu við aldraða áverka sjúklinga frekar. Lykilorð: Forgangsröðun, bráðamóttaka, áverkar aldraðra.
Source: Skemman
Author: Ívar Blöndahl Halldórsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Emergency Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036027504
