Work

Áhrif legslímuflakks á lífsgæði kvenna og möguleika þeirra til barneigna

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Legslímuflakk er góðkynja sjúkdómur. Það sem veldur legslímuflakki eru legslímufrumur úr legi sem hafa tekið sér bólfestu utan legs. Legslímufrumur viðhalda eðlilegri starfsemi utan legsins og geta þar valdið blæðingum og þar með samgróningum. Einkenni legslímuflakks geta verið ólík milli kvenna en algeng einkenni eru verkir og vanlíðan. Einkenni legslímuflakks geta haft áhrif á líðan og lífsgæði kvenna. Einnig geta einkenni haft neikvæð áhrif á atvinnumöguleika og þar með félagslega stöðu í samfélaginu. \nÓfrjósemi er ein af afleiðingum leglsímuflakks. Þekkt er að frjósemismeðferðir hafi veruleg áhrif á tilfinningalega líðan kvenna. Í þessari ritgerð var leitast við að svara þeirri spurningu um hvaða áhrif ófrjósemi hefur á lífsgæði kvenna með legslímuflakk, út frá fræðilegum heimildum. Niðurstöður ritgerðarinnar voru þær að algengt er að konur fái seint greiningu á sjúkdómnum og að þær mæta litlum skilningi í samfélaginu. Skortur á þekkingu heilbrigðisstarfsmanna lengir greiningartíma og eykur líkur á ófrjósemi. Áhrif sjúkdómsins á tilfinningalega líðan og lífsgæði gerir konur með legslímuflakk illa í stakk búnar til að takast á við áföll og erfiðleika tengdum ófrjósemi. \nMarkmið höfunda með þessari ritgerð er að auka vitundarvakningu kvenna og heilbrigðisstarfsmanna á einkennum legslímuflakks svo að konur fái rétta greiningu áður en áhrif sjúkdómsins verða óafturkræf. \nLykilhugtök: Legslímuflakk, ófrjósemi, tilfinningaleg líðan, meðferðarúrræði, lífsgæði.
Source: Skemman
Authors: Bryndís Rut Logadóttir 1979, Brynja Gestsdóttir 1989
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036043336
Cites: 82
Cited by:
Related to: 10