Work

Brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsskólum : íslenska tungan - lykillinn að skólakerfinu

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ísland var lengi eintyngt samfélag, flestir íbúar hérlendis voru eintyngdir og töluðu íslensku. Mikil aukning hefur verið af fólki af erlendum uppruna á síðastliðnum árum og því hefur einnig orðið mikil aukning af ungmennum af erlendum uppruna í framhaldsskólum hér á landi. Markmið þessarar fræðilegu ritgerðar var að kanna brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsskóla, sem búið hafa hér á landi í langan tíma og skoða hvernig íslenskukunnátta þeirra geti haft áhrif á það. Ritgerðin er rannsóknarritgerð þar sem notast var við fyrirliggjandi rannsóknir og fræðilegar heimildir. Brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsskólum er mjög hátt hér á landi og mun hærra en hjá börnum af íslenskum uppruna. Margar íslenskar rannsóknir benda til þess að börnum af erlendum uppruna finnist þau ekki tilheyra íslensku skólasamfélagi. Munur er á málkunnáttu eintyngdra og tvítyngdra jafnaldra í leikskóla sem helst út skólagöngu þessara hópa. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu í ljós að aldur við komu til landsins skiptir máli en einnig frá hvaða landi ungmenni koma þegar kemur að brottfalli þeirra úr framhaldsskóla, þar sem skyldleiki milli tungumála hefur mikið að segja varðandi brottfall. Þar að auki skipta félagslegar aðstæður máli og ílagið sem börn fá í íslenska tungumálinu. Tungumálakunnátta nemenda af erlendum uppruna hefur lítið verið rannsökuð í framhaldsskólum hér á landi. Því er mikilvægt að skoða stöðu þessa hóps ungmenna til að geta spornað við brottfalli úr framhaldsskóla.
Source: Skemman
Author: Rakel Ösp Gylfadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036129375
Cites: 26
Cited by:
Related to: 10