Work

Attitudes towards mental health among banking employees : generational differences in expectations and demands

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Yngri kynslóðir eiga almennt auðveldara með að bera kennsl á og þekkja einkenni andlegra veikinda á meðan eldri kynslóðir glíma enn við fordóma í geðheilbrigðismálum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf til geðheilbrigðismála á vinnustaðnum og hvort að kynslóðarmun væri þar að finna. Viðhorf til geðheilbrigðismála á vinnustaðnum voru mæld með sérútbúnum spurningum. Notast var við rafræna spurningakönnun sem innihélt spurningar um viðhorf til geðheilbrigðismála á vinnustaðnum en einnig var þar að finna lista sem mældi jafnvægi milli vinnu og einkalífs annars vegar og starfsánægju hinsvegar. Rannsóknin var framkvæmd í stóru fjármálafyrirtæki á Íslandi og voru þátttakendur 99 talsins. Við tölfræðiúrvinnslu var þátttakendum raðað niður á ólík kynslóðarbil eftir aldri þeirra. Hvorki var að finna marktækan mun milli kynslóðanna þriggja þegar kom að starfsánægju né jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Marktækan mun var að finna í tveimur af þeim spurningum sem mældu viðhorf til geðheilbrigðismála á milli kynslóða. Niðurstöður rannsóknarinnar höfðu þó takmarkað alhæfingargildi sökum fárra þátttakenda og einsleits úrtaks. Starfsfólk innan fjármálageirans býr oft yfir háu menntunarstigi sem getur ýtt undir betra geðheilbrigði og þ.a.l. ýtt undir einsleitni úrtaksins. Þörf er á frekari rannsóknum á mögulegum kynslóðarmun í viðhorfum á geðheilbrigðismálum á vinnustaðnum þar sem þetta efni hefur verið lítið rannsakað. \nLykilorð: Kynslóðamunur, Geðheilbrigði, Geðheilbrigði á vinnustað, Viðhorf til geðheilbrigðismála
Source: Skemman
Author: Lárus Jakobsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036144628
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10