Algengi áfallastreituröskunar, þunglyndis, kvíða og streitu meðal hælisleitenda á Íslandi
Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Megin markmið þessarar rannsóknar var að athuga geðheilsu hælisleitenda hér á landi. Þátttakendur voru sex hælisleitendur. Lagðir voru fyrir tveir listar: Post Traumatic Stress Diagnostics Scale (PDS) sem athugar áfallastreituröskun og Depression Anxiety Stress Scale (DASS) sem mælir þunglyndi, kvíða og streitu. Auk þess var lagður fyrir spurningalisti með sex opnum spurningum. Tvær tilgátur voru settar fram. Tilgáta eitt var sú að \nþátttakendur í rannsókninni myndu sýna fleiri og alvarlegri einkenni áfallastreituröskunnar en búast mætti við í almennu úrtaki, út frá mælingu á PDS kvarðanum. Tilgáta tvö var sú að þátttakendur í rannsókninni myndu sýna fleiri og alvarlegri einkenni þunglyndis, kvíða og streitu, en búast mætti \nvið í almennu úrtaki, út frá mælingu á DASS kvarðanum. Niðurstöður sýndu að þátttakendur sýndu meiri einkenni áfallastreituröskunar, þunglyndis, kvíða og streitu en almennt úrtak. Telja má að þátttakendur í þessari rannsókn séu líklegri til að hafa upplifað áfall en einstaklingar úr almennu þýði.
Source: Skemman
Authors: Guttormur Árni Ársælsson 1985, Jökull Jóhannsson 1984
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036175664
