Work

Börn fanga: Notkun tækni til tengslamyndunar

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Börn fanga hafa verið kölluð „falin fórnarlömb fangelsunar“ þar sem þau verða fyrir margvíslegum sálrænum, félagslegum og fjárhagslegum áhrifum í kjölfar fangelsunar foreldris. Gert verður grein fyrir þeim áhrifum sem fangelsun foreldris getur haft á barn, ásamt því að varpað verður ljósi á mikilvægi heimsókna þessara barna í fangelsi til foreldra sinna. Einnig verður fjallað um hvernig hægt er að nýta tækni til þess að viðhalda tengslum þessara barna við foreldra sína. Þá verður farið yfir íslensk lög og evrópska samninga með það að markmiði að gera grein fyrir hvernig stjórnvöld huga að velferð þessara barna. \nHelstu niðurstöður sýna að heimsóknir barna í fangelsin til foreldra sinna geta bætt líðan, hegðun og sjálfstraust barnanna, ásamt því að styrkja samband barns og foreldris. Miðað við þær niðurstöður er ljóst að heimsóknir barna til foreldris í fangelsi eru mikilvægar fyrir báða aðila. Þá sé mikilvægt að heimsóknaraðstaða sé barnvæn og að starfsfólk fangelsisins sé þjálfað í að þekkja aðstæður barna fanga. Í íslenskum lögum eru engin ákvæði um börn fanga, en rannsóknir styðja mikilvægi þess að vernda þennan viðkvæma hóp barna og því er nauðsynlegt að tryggja vernd þeirra í lögum. Aðstæður barna fanga einkennast af ýmsum erfiðleikum og því þarf að tryggja þessum börnum aukna vernd. Ásamt því er skráning á fjölda barna fanga á Íslandi ábótavant og ekki í samræmi við evrópskar reglugerðir sem leggja til að haldið sé vel utan um fjölda þeirra. Niðurstöður leiddu í ljós að úrræði sem nýta tækni til að viðhalda tengslum milli fanga og barna þeirra geta reynst góð viðbót við heimsóknir og styrkt tengsl til muna. Þá eru mikil tækifæri fyrir nýsköpun hérlendis hvað varðar slík úrræði þar sem hægt er að taka erlend úrræði til fyrirmyndar.
Source: Skemman
Author: Aníta Jacobsen
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036314714
Cites: 42
Cited by:
Related to: 10