Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um innleiðingu fjarvinnu innan opinberra stofnana á meðan á COVID-faraldrinum stóð og í kjölfar hans. Markmiðið með rannsókninni var að kanna viðhorf og reynslu opinberra stjórnenda af fjarvinnu, hver sé ávinningur af slíku vinnufyrirkomulagi og áskoranir við það. Rætt var við stjórnendur opinberra stofnan varðandi framtíðarsýn þeirra á fjarvinnu innan þeirra stofnana sem þeir eru í forsvari fyrir. Byggt er á aðferðafræði eigindlegra rannsóknaraðferða. Tekin voru hálfopin viðtöl við sex stjórnendur innan meðalstórra og stórra stofnana. Þetta voru þrír forstöðumenn (æðstu stjórnendur), tveir mannauðsstjórar og einn skrifstofustjóri ráðuneytis, allt fólk sem kemur að stjórnun mannauðsmála. Helsti ávinningur af fjarvinnu, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar, fólst í auknum sveigjanleika fyrir starfsfólkið og betra jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Helstu áskoranir beindust að því að tryggja skilvirka vinnu, upplýsingamiðlun og árangursrík samskipti á milli starfsfólksins. Sýndi rannsóknin jafnframt fram á að stuðningur stjórnenda, traust og frammistaða voru áhrifamiklir þættir varðandi hagræði og árangur fjarvinnufyrirkomulags innan stofnananna. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna um viðfangsefnið.
Source: Skemman
Author: Alda Björk Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036386161
