Work

„Börn eru framtíð jarðarinnar" : barnvænt sveitarfélag : sjónarmið og vitneskja barna um Barnasáttmálann og réttindi barna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Hér á landi er unnið markvisst að því að innleiða réttindi barna með líkani og verkfærakistu sem nefnist barnvæn sveitarfélög. Sveitarfélag er barnvænt ef það leggur sig markvisst fram við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem velferð og réttindi barna liggja til grundvallar en algengt er að ákvarðanir sem tengjast málefnum barna séu teknar án samráðs við þau. Sveitarfélagið Akureyri, sem tekur þátt í verkefninu, hefur hlotið viðurkenningu sem slíkt, samkvæmt skilgreiningu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða reynslu og þekkingu barna, sem búa á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit, af lýðræðislegri þátttöku í tengslum við 1.mgr. 12. gr. sáttmálans. Vitað er að börn búa við ólíkar aðstæður og var tilgangur verkefnisins einnig að skoða hver sýn þeirra er á réttindi barna. \nRitgerðin byggir á aðferðum eigindlegra rannsókna. Þátttakendur voru börn í 4. og 8. bekk í 4 grunnskólum á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit, alls 43 börn, ásamt 2 einstaklingum sem koma að barnvænu sveitarfélagi, Barnasáttmálanum og réttindaskóla Sameinuðu þjóðanna. Tekin voru einstaklings- og rýnihópaviðtöl og við úrvinnslu gagna var þemagreiningu beitt. \nHelstu niðurstöður þessarar rannsóknar voru að þátttakendur kunna skil á innihaldi þeirra réttinda sem Barnasáttmálinn veitir og er skilningur þeirra almennt góður. Þátttakendur áttuðu sig ekki í öllum tilvikum á því hvaðan vitneskja þeirra kom og áttu í einhverjum tilvikum erfitt með að koma hugsun sinni í orð. Þátttakendum fannst öll börn jafn mikilvæg og að skoðanir þeirra eigi að hafa jafnt vægi en einnig kom fram að þeim fannst forsjáraðilar þeirra bera meiri virðingu fyrir skoðunum þeirra en starfsmenn skóla- og menntastofnana. Þátttakendur í réttindaskólanum, hvort sem um var að ræða í 4. eða 8. bekk, lögðu lærðan skilning í Barnasáttmálann en þátttaka nemenda í skólanum mætti í öllum tilvikum ákvæðum sáttmálans.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036393709
Cites: 53
Cited by: 2
Related to: 10