Work

,,Barnið kemur inn í bekk og það er eiginlega svolítið vandamál“ : grunnþátturinn jafnrétti í kennsluháttum tungumálakennara

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Kennarinn er lykillinn að öllu starfi skóla. Hann á að starfa undir aðalnámskrá grunnskóla og fylgja henni við skipulag, framkvæmd og mat á skólastarfi. Grunnþætti menntunar er að finna í aðalnámskránni og eru sex, en í þessari rannsókn verður einn þeirra sérstaklega tekinn fyrir: Jafnrétti. Rannsókn þessi mun kanna hvernig tungumálakennarar vinna með grunnþáttinn jafnrétti í sinni kennslu. Til að athuga það voru fimm rannsóknarspurningar mótaðar. 1. Hver er tilgangurinn með grunnþættinum jafnrétti? 2. Hvað felst í jafnrétti að mati kennara? 3. Vefa kennarar jafnrétti meðvitað inn í vinnu sína? Ef svo er - hvernig? 4. Upplifa kennarar fordóma í skólakerfinu? 5. Hafa kennarar fengið jafnréttismenntun? Til að svara eftirfarandi spurningum voru hálf opin viðtöl tekin við fimm tungumálakennara í þremur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. \nNotast var við eigindlega aðferðafræði, þar sem markmið rannsóknarinnar var ekki að finna eitt rétt svar heldur að skilja upplifanir og viðhorf kennaranna. Haft var samband við 27 skólastjóra á höfuðborgarsvæðinu og jákvæð svör fengust frá þremur þeirra. Þrír kennaranna störfuðu því við sama skóla. Viðtölin voru hálf opin og hvert viðtal var því ólíkt þar sem ekki var farið eftir hefðbundnum spurningalista. Gögn voru greind með þemagreiningu og skoðuð með femínísku gagnrýnu sjónarhorni. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu að fæstir kennaranna þekktu grunnþættina sex og aðeins einn þeirra fléttaði jafnréttisfræðslu meðvitað inn í kennsluhætti sína. Allir kennararnir sögðu þó að jafnrétti væri mikilvægur þáttur kennslu og flestir notuðust ómeðvitað við einhvers konar jafnréttisfræðslu. Kennararnir tengdu jafnrétti ýmist við skóla án aðgreiningar eða einstaklingsmiðað nám eða við að nemandi fái að vera hann sjálfur, óháð bakgrunni hans. Áhugavert þótti að allir kennaranna nema einn höfðu upplifað fordóma innan skólakerfisins, einn þeirra upplifði þá daglega. Tveir kennaranna sögðust finna fyrir fordómum frá samkennurum sínum í garð barna með fjölmenningarlegan bakgrunn og sögðu viðhorfsbreytingu vera nauðsynlega. Allir kennaranna höfðu fengið einhverja jafnréttismenntun, þó mismikla. Þeir kennarar sem mestan áhuga höfðu á jafnrétti höfðu sótt námskeið og fyrirlestra á eigin vegum, á meðan aðrir höfðu fengið fræðslu innan skólanna sem þeir störfuðu við. Það var þó ljóst að fræðslan sem skólarnir buðu upp á var ekki mjög mikil og hana mætti bæta. \nRannsókn þessi sýnir að skólastjórnendur og kennarar þurfa að forgangsraða jafnréttismenntun til að vera í stakk búin að takast á við fordómana sem sjást innan grunnskóla í dag. Með því að setja jafnréttisfræðslu ekki í forgang eru skólastjórnendur ómeðvitað að veita jafnréttisbaráttu andspyrnu sem veldur því að kennarar gefa ekki vafið jafnrétti inn í kennsluhætti sína.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036429674
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10