Work

Brúin yfir gjána. Aðlögun, stuðningur og líðan nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga: Eigindleg rannsókn

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Á Íslandi eins og víða erlendis er brottfall úr starfi meðal nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga hátt. Ein af ástæðum þess er talin vera líðan þeirra sem tengist hlutverkaskiptum þegar þeir fara úr hlutverki hjúkrunarfræðinema yfir í hlutverk hjúkrunarfræðings. Markmiðið með þessari rannsókn er að kanna hvers konar aðlögun og stuðning nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar fá þegar þeir hefja störf eftir útskrift, ásamt líðan þeirra í starfi. \nAðferð: Rannsóknaraðferðin var eigindleg og fór gagnaöflun fram með rýnihópaviðtölum. Gagna var aflað í febrúar og maí 2020. Notuð var þemagreining við gagnaúrvinnslu. Þátttakendur voru valdir með tilgangs- og snjóboltaúrtaki. Þátttakendur voru hjúkrunarfræðingar sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri á árunum 2018 og 2019. \nNiðurstöður: Tekin voru 2 rýnihópaviðtöl. Alls tóku 14 hjúkrunarfræðingar þátt í rannsókninni og voru þeir á aldrinum 26-42 ára. Niðurstöður leiddu í ljós þrjú megin þemu: „Umbreytingin“, „Að vera búin á því“ og „Að brúa bilið“. Fram kom að formlegri aðlögun eftir útskrift var ábótavant og átti aðlögun sér stað á seinni önn þriðja námsárs til að undirbúa nemendur undir að taka hjúkrunarvaktir. Þátttakendur fengu stuðning frá samstarfsfólki, leiðbeinendum, stjórnendum, stuðningshópum og jafningjum. Þeir upplifðu þó nokkra streitu á fyrsta ári í starfi, sérstaklega á fyrstu mánuðunum. \nÁlyktun: Hlutverkaskiptin geta valdið álagi og vanlíðan hjá nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum. Mikilvægt er að hafa skipulögð einstaklingsmiðuð aðlögunarprógrömm þegar þeir hefja störf til þess að hafa jákvæð áhrif á líðan þeirra Skapa þarf vinnustaðamenningu sem tekur vel á móti nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum, kanna líðan þeirra og veita þeim stuðning fyrstu mánuðina eftir útskrift til að auðvelda þeim að brúa bilið milli náms og starfs og koma þannig í veg fyrir ótímabært brottfall þeirra úr starfi. \n \nLykilorð: Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar, aðlögun, stuðningur, hlutverkaskipti og líðan.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Lind Guðmundsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036450877
Cites: 78
Cited by:
Related to: 10