Work

Dagleg hreyfing mænuskaddaðra á Íslandi

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Að stunda hreyfingu er öllum einstaklingum nauðsynlegt. Regluleg hreyfing er mænusködduðum einnig mikilvæg en áhrif reglulegrar hreyfingar á heilsu og velferð einstaklinga með mænuskaða er samt sem áður lítið rannsökuð. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hver dagleg hreyfing mænuskaddaðra einstaklinga er á Íslandi með tilliti til hreyfiráðlegginga frá Embætti Landlæknis og alþjóðlegra heilbrigðisstofnana. Jafnframt var markmið að kanna hvort hægt væri að áætla daglega hreyfingu hjá mænusködduðum einstaklingum út frá alþjóðlegum spurningalista, International physical activity questionnaire (IPAQ). Rannsóknin var fólgin í mælingum á daglegri hreyfingu með hröðunarmælum, þolprófi og spurningalista. Mæling með hröðunarmælir var fólgin í því að mælir var festur á víkjandi úlnlið og borinn í eina viku. Auk þess svöruðu þátttakendur spurningalista um hreyfingu síðastliðna 7 daga (IPAQ). Helmingur þátttakanda þreytti þar að auki 12 mínútna þolpróf. Þátttakendur (n=14) voru á aldrinum 19-52 ára og voru þeir allir með þverlömun. Einstaklingar með mænuskaða hreyfa sig að meðaltali 292 slög á mínútu (cpm) á dag og 297 cpm um helgar. Niðurstaða úr þolprófi þátttakanda þoltala mælt með aðlöguðu Cooper prófi, var 18,6 ml/kg/mín. Samkvæmt spurningalista voru þátttakendur að hreyfa sig í 115 mínútur á dag af miðlungs til mikilli ákefð. Há fylgni var á milli hröðunarmæla og spurningalista r=0,83. Þessi rannsókn fer inn á nýtt svið sem ekki hefur verið kannað áður hér á landi og niðurstöður kalla á svörun samfélagsins um bætta þjónustu og aðgengi þessa hóps að daglegri þjálfun, aðstöðu og sérhæfðum starfskröftum. Með tilliti til fjölda þátttakenda hafði hver og einn mikil áhrif á niðurstöður rannsóknar. Þar sem hreyfing mænuskaddaðra sem og annarra hjólastólanotenda er mun minna rannsökuð en hreyfing heilbrigðra er þörf á frekari rannsóknum á þessu sviði. Auka þarf þekkingu fræðimanna og annarra á sviði mænuskaddaðra tengda hreyfingu svo hægt sé að mæta þörfum sem flestra þeirra sem búa við þverlömun. Því er mikilvægt að halda áfram rannsóknum á hreyfingu mænuskaddaðra, bæði hér á landi og erlendis.
Source: Skemman
Author: Ásta Heiðrún Jónsdóttir 1989
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7036638215
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10