Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Mjaðmabrot eftir byltur hjá öldruðum er vaxandi vandamál á heimsvísu. Margir áhættuþættir eru fyrir mjaðmabroti og því er mikilvægt fyrir heilbrigðisstarfsfólk að þekkja þá. Mjaðmabrot eru alvarleg og hafa ekki einungis slæm áhrif á viðkomandi heldur valda einnig álagi á heilbrigðiskerfið. Dánartíðni aldraðra eftir mjaðmabrot er há en er mismunandi eftir þjóðum, aldri, kyni og kynstofni. \nTilgangur: Taka saman tölulegar upplýsingar um dánartíðni aldraðra, 65 ára og eldri, eftir mjaðmabrot og komast að því hversu há tíðnin er á heimsvísu. Skoða hvort munur sé á dánartíðni milli kynja og athuga þætti sem geta haft áhrif á hana. \nAðferð: Framkvæmd var kerfisbundin fræðileg samantekt þar sem aflað var rannsókna í gegnum gagnagrunnana PubMed og Google Scholar. Leitarskilyrði voru þrengd og notast var við MeSH leitarkerfið til að gera gagnaöflun nákvæmari. Sett var upp PRISMA flæðirit við greiningu rannsókna og inntöku- og útilokunarskilyrðum beitt til að auka gæði samantektar. \nNiðurstöður: Dánartíðni eftir mjaðmabrot hjá öldruðum innan spítala er að meðaltali 8%. Eftir einn mánuð var hún að meðaltali 2,5% og eftir eitt ár að meðaltali 19% en í Tyrklandi var dánartíðnin hæst, eða um 33%. Dánartíðni er hærri hjá körlum en konur hljóta aftur á móti 72%-80% af öllum mjaðmabrotum. Helstu áhrifaþættir á dánartíðni eftir mjaðmabrot eru aldur, kyn, fjöldi sjúkdómsgreininga, göngugeta fyrir brot, heilabilun og meðferðartími fyrir aðgerð. \nÁlyktun: Dánartíðni eftir mjaðmabrot er há og getur valdið ótímabærum dauðsföllum hjá eldra fólki þar sem oft er hægt að koma í veg fyrir þau. Dánartíðni er há hjá báðum kynjum en þó áberandi hærri hjá karlmönnum. Konur eru í meiri áhættu fyrir mjaðmabroti meðal annars þar sem beinþynning er algengara vandamál hjá þeim. Frekari rannsókna er þörf varðandi þætti sem hafa áhrif á dánartíðni og að þróaðar séu meðferðir til þess að draga úr andláti aldraðra. \nLykilorð: Mjaðmabrot, dánartíðni, aldraðir, munur milli kynja, fjölkvillar.
Source: Skemman
Authors: Þórhildur Margrét Þórðardóttir, Arnar Gunnsteinsson, Ísabella Hlynsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Hip and Femur Fractures
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037033467
