Work

Draumur Guðrúnar. Þjónusta við foreldra andvana fæddra barna á Íslandi

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að skoða hvernig íslenskri heilbrigðisþjónustu tekst til við umönnun foreldra sem eignast hafa barn, fætt andvana. Ætlunin var að rýna í hvernig hlúð væri að þeim og hvert hlutverk ljósmæðra væri við þessar aðstæður. Leitað var heimilda í rafrænum gagnasöfnum, fræðilegum bókum og tímaritum auk þess sem tekin voru viðtöl við fagaðila hér á landi með sérþekkingu á efninu. Heimildaleit sýnir að þrátt fyrir að rannsóknum á andvana fæðingum hafi farið fjölgandi síðustu ár, minnir tilvera þessara barna um margt á skítugu börnin hennar Evu. Ekki er haldið utan um fjölda andvana fæddra barna hjá Sameinuðu þjóðunum né eru leiðir til þess að fækka tilfellum á meðal þróunarmarkmiða. Í mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á heimsbyrði sjúkdóma eru andvana börn undanskilin en þó er tala andvana fæddra barna tæpar þrjár milljónir á ári. Niðurstöður yfirlitsins sýna fram á að vel er hlúð að foreldrum andvana fæddra barna á Íslandi. Starfshættir heilbrigðisstofnanna samræmast alþjóðlegum verklagsreglum sem þjóna þeim þörfum sem rannsóknir hafa sýnt fram á að foreldrar kunna hvað mest að meta í fari umönnunaraðila. Lengi má þó gott bæta. Fjallað er um leiðir sem gagnast gætu konum á meðgöngu í kjölfar missis. Yfirlitið er framlag til þekkingarþróunar í ljósmóðurfræðum og getur haft hagnýtt gildi fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir barnshafandi konum.
Source: Skemman
Author: Lilja Þórunn Þorgeirsdóttir 1983
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037214289
Cites: 34
Cited by:
Related to: 10