„Ég er náttúrulega bara komin með nóg af þessu orði“: Viðhorf tilvonandi frumkvöðla til sjálfbærra viðskiptahátta
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Vegna aukins þrýstings um viðskiptahætti sem styðja við sjálfbæra þróun ætti sjálfbærni að vera höfð að leiðarljósi í nýjum viðskiptahugmyndum á Íslandi, sem og í heiminum öllum. Það er því vert að skoða hugarfar þeirra sem hafa hug á því að vinna að nýjum viðskiptahugmyndum. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða viðhorf tilvonandi frumkvöðla til sjálfbærra viðskiptahátta. Til þess voru tekin rýniviðtöl við tvo hópa nemenda í Háskóla Íslands. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að viðmælendur séu meðvitaðir um mikilvægi sjálfbærrar þróunar og vísuðu þar bæði til umræðunnar í samfélaginu sem og til stefnu stjórnvalda. Úr viðtalsgögnunum má lesa marþætt viðhorf til sjálfbærra viðskiptahátta. Bæði má sjá jákvæðni og einbeittan vilja til að vinna að viðskiptahugmyndum sem styðja til jafns við náttúru, samfélag og efnahag en líka neikvæðni. Neikvæð viðhorf voru greinileg í harðorðum yfirlýsingum einstakra aðila innan hópsins en ekki síður í áhugaleysi og leiða sem hluti hópsins sýndi umfjöllunarefni rannsóknarinnar. Niðurstöðurnar gefa líka til kynna að til staðar séu ómeðvituð viðhorf til sjálfbærni þar sem hluti viðmælenda lagði lítið til umræðunnar þrátt fyrir að kynna viðskiptahugmyndir sem flokkast sem sjálfbærar viðskiptahugmyndir. Í umræðum og ályktunum eru helstu niðurstöður mátaðar við fræðilegan hluta rannsóknarinnar og það rætt hvort styðja ætti við tilvonandi frumkvöðla með áherslum á kennsluaðferðir sem styðja við mótun sjálfbærra viðskiptahugmynda.
Source: Skemman
Author: Katrín Magnúsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Management of Technology and Innovation
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037226372
