Work

Er app til happs? : hvernig má efla íþróttakennslu á framhaldsskólastigi með heilsutengdum smáforritum

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Framhaldsskólunum er falið samkvæmt Aðalnámsskrá framhaldsskóla að kenna þá grein sem í daglegu tali er kölluð íþróttir. Í námsskránni heitir þessi faggrein íþróttir, líkams- og heilsurækt og þar skal kenna heilsurækt, mataræði og áhrif hreyfingar á heilsu. Að námi loknu skulu nemendur vera færir um að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera sér grein fyrir áhrifum hreyfingar og mataræðis á heilsufar. Mikilvægi framhaldsskólanna í fræðslu um heilbrigðan lífsstíl er mikið og getur verið einn af lykilþáttum í því að snúa við þeirri þróun sem hefur verið á Vesturlöndum síðustu áratugi en með því er átt við mikla þyngdaraukningu og minni líkamlega hreyfingu einstaklinga. Þar sem nemendur eru mjög fjölbreyttur og litríkur hópur getur verið flókið fyrir kennara og skólayfirvöld að ná til þeirra allra. Í þessari ritgerð verður leitast við að svara rannsóknarspurningunni „Er mögulegt að nota snjalltæki og smáforrit til að hvetja nemendur í framhaldsskólum til þess að stunda hreyfingu og sérstaklega þá sem hafa lítinn áhuga á íþróttum og heilsueflingu?“ Öflun gagna fór fram með rýni í rannsóknir sem áður hafa verið gerðar. Lesnar voru bæði innlendar og erlendar greinar, rannsóknir af öllu tagi og skýrslur sem hafa verið gefnar út af opinberum aðilum. Niðurstöður verkefnisins eru þær að erlendar rannsóknir sýna að jákvæð tengsl eru á milli notkunar heilsutengdra smáforrita og hreyfingar. Mögulegt er að yfirfæra þá þekkingu yfir á íslenska framhaldsskólanemendur og nota smáforrit í íþróttakennslu í framhaldsskólum.
Source: Skemman
Author: Kara Rún Árnadóttir Schiöth 1990
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037548949
Cites: 44
Cited by:
Related to: 10