Work

,,Ég hugsa stundum á ég kannski bara vera ein, hentar mér að vera í sambandi?''. Áhrif ADHD á parasambönd fullorðinna einstaklinga

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Athyglisbrestur með ofvirkni (e. attention deficit hyperactivity disorder; hér eftir ADHD) er taugaþroskaröskun sem kemur oftast snemma fram og getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf. Það var þó ekki fyrr en í lok síðustu aldar sem menn fóru að velta því upp að fullorðnir gætu mögulega verið með röskunina jafnt sem börn. Umræðan um ADHD hefur færst í aukana undanfarin ár sem hefur sýnt hve hamlandi röskunin getur verið. Meginmarkmið þessarar ritgerðar var að kanna hvaða áhrif ADHD meðal fullorðinna einstaklinga hefur á parasambönd þeirra og jafnframt að varpa ljósi á helstu áskoranir í slíkum parasamböndum með tilliti til samskipta og verkaskiptingar heimilisins. Tilgangur rannsóknarinnar var að reyna að fanga upplifun og reynslu fullorðinna einstaklinga með ADHD af parasamböndum þeirra í þeirri viðleitni að stuðla að aukinni samfélagslegri vitund um þessa taugaþroskaröskun. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst við tilgangsúrtak við val á þátttakendum. Gagna var aflað með hálfstöðluðum viðtölum í ágúst og september 2023 við tíu fullorðna einstaklinga sem áttu það sameiginlegt að vera greindir með ADHD, hafa verið eða vera í parasambandi og búa eða hafa búið með maka. Þátttakendurnir voru þrír karlmenn og sjö konur á aldrinum 25 til 37 ára. Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika mikilvægi snemmtækrar íhlutunar ásamt viðeigandi fræðslu um áhrif ADHD á samskipti og náin sambönd er einstaklingur fær greiningu við ADHD. Meirihluti viðmælenda fékk ekki greiningu fyrr en á fullorðinsaldri sem átti eftir að hafa mótandi áhrif á sjálfsmynd þeirra sem og náin sambönd. \n \n \n \n \n \nLykilorð: ADHD, fullorðnir með ADHD, parasambönd, verkaskipting heimilisins
Source: Skemman
Author: Júlía Helga Jakobsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037602971
Cites: 70
Cited by:
Related to: 10