Work

Fjársjóðsleitin: Markviss uppbygging á sjálfsáliti

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að mæla áhrif sjálfstyrkingarnámskeiðs sem kallast Fjársjóðsleitin. Þátttakendur í rannsókninni voru 11 strákar og 12 stelpur á aldrinum 6-9 ára sem voru skráð á námskeiðið. Einnig var kannað hvernig foreldrar þátttakenda mátu hæfni barna sinna, fyrir og eftir námskeiðið. Notast var við parað t-próf til að meta áhrif námskeiðsins. Foreldrar 10 stráka og 12 stelpna tóku þátt í rannsókninni. Niðurstöðurnar benda til þess að Fjársjóðsleitin hafi áhrif á almennt sjálfsálit þátttakenda. Einnig fannst marktækur munur hjá stelpum á einum af afmörkuðu þáttum sjálfsálits tengt íþróttahæfni. Munur fannst á áhrifum Fjársjóðsleitarinnar á hæfni barnanna að mati foreldra. Almennt hafa börn á þessum aldri frekar jákvætt sjálfsálit en rannsóknir benda til þess að það lækki þegar börn færast yfir á unglingsárin. Möguleg ástæða þess er talin geta verið raunsærri endurgjöf frá foreldrum og kennurum og líklega hefur samanburður unglinga við jafnaldra sína einnig mikil áhrif. Færð hafa verið rök fyrir því að það að byggja markvisst upp sjálfsálit barna, áður en þau komast á unglingsárin, geti virkað sem forvörn fyrir lækkun á sjálfsáliti og jafnvel stuðlað að andlegu heilbrigði (Eiríkur Örn Arnarson og Craighead, 2009; Fennell og Jenkins, 2004; Harter, 2015; WHO, 2005). Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að Fjársjóðsleitin geti nýst til uppbyggingar á sjálfsmynd barna og þar af leiðandi sem forvarnarstarf við hinum ýmsu geðrænu vandamálum sem steðja að unglingum í dag og tengjast lágu sjálfsáliti og vöntun á sjálfsþekkingu.
Source: Skemman
Author: Inga Dóra Glan Guðmundsdóttir 1977
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037834541
Cites: 95
Cited by:
Related to: 10