Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Kenningin um gjafaskipti var þróuð af Marcel Mauss um 1920. Hann hélt því fram að gjafaskipti fælu í sér þrjú lykilatriði; að gefa, að þiggja og að gefa til baka. Líffæragjöf er þegar einstaklingur gefur úr sér líffæri til ígræðslu. Líffæraígræðsla er það þegar líffæri eru fjarlægð úr einni manneskju og síðan grædd í aðra. Sem dæmi má nefna að bæði er hægt að þiggja nýra frá lifandi og látnum gjafa. Lifandi nýrnagjöfum hefur fjölgað mikið síðustu ár vegna skorts á nýrum frá látnum gjöfum. Þar sem biðlistar eftir líffærum lengjast hafa sérfræðingar leitað nýrra leiða við öflun á líffærum, til dæmis með líffæraígræðslu þar sem líffæri eru fengin úr dýrum og grædd í menn eða jafnvel með lögleiðingu á líffærasölu til þess að hvetja til líffæragjafar. Margir telja þó að lögleiðing líffærasölu myndi neyða fátækt fólk til þess að selja líffæri sín og það myndi því breikka bilið milli ríkra og fátækra í heiminum. Því hefur verið haldið fram að líffæragjöf gæti átt margt sameiginlegt með gjafaskiptum, þar sem gjafaskipti eru byggð á gjöfum af fúsum og frjálsum vilja. Ólíkt þeirri skyldu að gefa til baka þegar um hefðbundin gjafaskipti er að ræða er það að gefa ekki til baka almenna reglan í líffæragjöf. „Gjöf lífsins”, eins og líffæragjöf hefur stundum verið nefnd, er gjöf sem getur ekki verið endugoldin með jafngildri gjöf eða betri. Líffæragjöf er því gjafaskipti þar sem ekki er gert ráð fyrir endurgjöf. Gjöfin á sér ekkert efnislegt eða táknrænt jafngildi og fjárhagsleg endurgreiðsla fyrir líffæri er bönnuð með lögum í flestum löndum.
Source: Skemman
Author: Elísa Björk Kjerúlf
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037843259
