Work

Félagsfærniþjálfun : Stig af stigi með fimm ára börnum

Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Hér verða kynntar niðurstöður rannsóknar á kennsluefninu Stig af stigi \nþar sem markmiðið var að kanna hvernig Stig af stigi er notað með fimm \nára börnum í einum leikskóla og hvernig börnin læra af kennsluefninu. \nBeitt var eigindlegum rannsóknaraðferðum, tilviksrannsókn og voru \nþátttakendur þrír kennarar og átta börn. Helstu niðurstöður voru að börnin \nbjuggu yfir hæfni til að setja heiti á tilfinningar, gátu lesið úr tilfinningum \nannarra og gátu tengt tilfinningar við athafnir. Til dæmis lýstu þau \nsamkennd sem hjálpsemi, að setja sig í spor annarra, gagnkvæmri \nvirðingu og tillitsemi við náungann. Kennarar töldu börnin ekki hafa getu \ntil að greina og leysa vandamál ef þau væru sjálf hluti af vandamálinu en \nbörnin töldu sig hafa þá hæfni. Flest börnin sögðu Stig af stigi vera \nskemmtilegt. Börnin brugðust vel við þeim aðferðum sem kennarar \nbeittu, s.s leikrænni tjáningu. Kennarar töldu framsetningu skipta miklu \nmáli og að helstu aðferðir þeirra væru leikræn tjáning, virk hlustun og \nhrós. Kennarar höfðu mikla trú á kennsluefninu og töldu Stig af stigi \nkennsluefnið vera góða viðbót við óhefðbundið nám barna í leikskóla. \nAuk þess telja þeir að börnin öðlist aukna hæfni til að setja sig í spor \nannarra, auki getu sína til að lesa í og greina tilfinningar sínar og annarra \nog vera óhræddari við að sækjast eftir hjálp. \nLykilorð: Félags- og tilfinningaþroski, rannsókn með börnum.
Source: Skemman
Author: Birna Dís Bjarnadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037916944
Cites: 48
Cited by: 3
Related to: 10