Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Talið hefur verið að fjölskyldumáltíðum fari fækkandi og að það komi niður á gæði fæðu barna og unglinga þar sem þau borða oftar ein en áður. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort tengsl væru á milli fjölskyldumáltíða og gæða fæðu hjá börnum og unglingum, það er hvort tíðari máltíðir hafi jákvæð áhrif á næringu þeirra. Einnig var skoðað hvort að fjöldi fjölskyldumáltíða hafi tengsl við líkamsþyngdarstuðul og líkamsímynd ungmennanna. Notast var við gagnasafn frá alþjóðlegu rannsókninni Heilsa og lífskjör skólanema (Health Behavior in School-aged Children/HBSC), þar er gögnum safnað á fjögurra ára fresti frá nemendum, bæði strákum og stelpum, í 6., 8. og 10. bekk (11, 13 og 15 ára). Í þessari rannsókn var notast við svör frá þátttakendum í skólum á Íslandi skólaárið 2013-2014 sem alls voru 10.651 börn og unglingar eða tæp 84% af þýðinu, kynjahlutfallið var 50,3% strákar og 49,7% stelpur. Niðurstöður sýndu að 66% nemenda borðuðu kvöldmat á hverjum degi með foreldrum sínum. Bæði strákar og stelpur sem borðuðu oftar morgun- og kvöldmat með móður og/eða föður neyta oftar ávaxta og grænmetis og sjaldnar sykraðs goss, sælgætis og orkudrykkja. Stelpur sem borðuðu fimm sinnum eða oftar í viku með foreldrum sínum borða oftar grænmeti og ávexti en strákar sem borðuðu jafn oft með foreldrunum. Strákar sem borðuðu með móður og/eða föður sjaldnar en einu sinni í viku drekka sykrað gos oftar en stelpur sem deila máltíð með foreldrum sínum jafn oft. Þegar fjölskyldumáltíðir og líkamsímynd voru skoðuð hjá nemendum í 10. bekk komu fram svipaðar niðurstöður á heildina litið fyrir bæði kyn. Flestir nemendur sem borðuðu fimm sinnum í viku eða oftar með foreldrum sínum töldu sig vera um það bil mátulega. Strákar sem borðuðu kvöldmat aldrei eða sjaldnar en vikulega með þeim töldu sig frekar vera aðeins of granna eða alltof granna en stelpur aftur á móti, sem borðuðu kvöldmat aldrei eða sjaldnar en vikulega með foreldrum, töldu sig frekar vera aðeins of feitar eða alltof feitar. Þegar líkamsþyngdarstuðull var skoðaður kom í ljós að nemendur sem borða kvöldmat sjaldan með foreldrum eru frekar of þungir en þeir sem borða oftar með þeim.
Source: Skemman
Authors: Sólborg Ýr Sigurðardóttir 1987, Vildís Björk Bjarkadóttir 1986
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037924218
