Work

Forvarnir algengra meiðsla í knattspurnu : fræðsluhandbók fyrir knattspyrnufélög

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur: Tilgangur verkefnisins er að útbúa handbók fyrir knattspyrnuiðkendur og -þjálfara á Íslandi til að vinna gegn meiðslum og brottfalli. Verkefnið er byggt á algengum meiðslum í knattspyrnu og fyrirbyggjandi æfingum, bæði fyrir bráðameiðsli og álagsmeiðsli Verkefninu er skipt upp í handbók og fræðilegan inngang. Handbókin inniheldur fyrirbyggjandi æfingar ásamt kennslumyndböndum. Fræðilegi kaflinn byggist á rannsóknum, ritrýndum greinum og kennslubókum um meiðsli í knattspyrnu. \nMarkmið: Markmið handbókarinnar er að fræða iðkendur og þjálfara í knattspyrnu um meiðsli í íþróttinni og æfingar sem geta komið í veg fyrir meiðslin. Vonast er til að íþróttafélög á Íslandi geti haft handbókina til hliðsjónar og að hún hvetji þá til að stunda æfingar sem fyrirbyggja meiðsli. \nÁvinningur: Vonast er til að ávinningur verkefnisins verði sá að hjálpa þjálfurum að finna æfingar til að koma í veg fyrir meiðsli knattspyrnumanna og að meiðslatíðni þeirra minnki með tilkomu handbókarinnar.
Source: Skemman
Authors: Birgitta Hallgrímsdóttir, Margrét Björk Grétarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7037977230
Cites: 167
Cited by:
Related to: 10