Framtíðin er heilsuefling og sjálfbærni : mikilvægir þættir í skólamötuneytum og heimilisfræðikennslu
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Heilsuefling og sjálfbærni eru áberandi í umræðu í heiminum í dag. Rannsóknir hafa sýnt að þessir þættir tengjast, styrkja hvor annan og vinna því vel saman. Þeir miða að því að hafa áhrif á framtíðina og vinna að því að breyta og bæta lífshátt fólks og hlúa á sama tíma að umhverfi og mannlega þættinum. Í ritgerðinni verður leitast eftir að skoða tengsl heilsueflingar og sjálfbærni og hvernig þessir tveir þættir tengjast inn í skólamötuneyti og heimilisfræðikennslu. Í fyrsta lagi er lögð áhersla á að skoða skólamötuneyti en þau eiga að vera notalegur staður þar sem nemendur jafnt sem starfsfólk njóta þess að setjast niður og eiga góða stund saman. Rannsóknir benda til þess að umhverfisþættir eins og hljóðvist hafi áhrif á hvað við borðum og hvernig borðhald fer fram. Í öðru lagi þá er fjallað um hvernig heilsuefling og sjálfbærni tengjast heimilisfræðikennslu, en heimilisfræðikennsla hefur sterkar tengingar við heilsueflingu og sjálfbærni með heilbrigðum lífsháttum, matartilbúningi, næringu og verndun umhverfisins auk annarra þátta. Þess vegna er heimilisfræðin kjörinn vettvangur til að kenna þessa tvo þætti. Því samþætting heilsueflingar og sjálfbærni í skólastarfi er mikilvægt framlag til þess að skapa heilbrigt og sjálfbært umhverfi. Þessir tveir þættir eru nátengdir því einstaklingar sem lifa heilbrigðu líferni og eru við góða heilsu stuðla að sjálfbærni með því að vera virkir þátttakendur og ábyrgir einstaklingar fyrir lífi sínu. Menntun í sjálfbærni er grunnurinn að blómlegu samfélagi þar sem nemendur læra á þverfaglegan hátt að tileinka sér ákveðin gildi til að efla getu og hæfni til að stuðla að bættu samfélagi með sjálfbærri þróun að leiðarljósi. Það hefur meðal annars í för með sér bætta heilsu og betri umgengni um náttúruauðlindir. Ásamt því að miðla til komandi kynslóða að skila umhverfinu í betra ásigkomulagi heldur en núverandi kynslóð tók við því. Því telur höfundur að leggja megi aukna áherslu á að samþætta sjálfbærni og heilsueflingu í skólastarfi. Jafnframt að skólar vinni betur að úrbótum á umhverfi skólamötuneyta.
Source: Skemman
Author: Helga Sigurðardóttir 1963-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038091963
