Work

Fjölskyldur fatlaðra barna: Reynsla þeirra af þjónustu

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Fjölskyldur fatlaðra barna þurfa alla jafna á meiri þjónustu að halda vegna fötlunar barns síns heldur en fjölskyldur með ófötluð börn. Þá er mikilvægt að þjónustan sem þeim er veitt komi til móts við bæði þarfir barnsins og fjölskyldunnar í heild. Fjölskyldumiðuð þjónusta hefur reynst vel í vinnu með fjölskyldum fatlaðra barna en hún leggur áherslu á að auka lífsgæði allra í fjölskyldunni með því að vinna ekki eingöngu með barninu heldur allri fjölskyldunni. Gott samstarf á milli fagaðila og fjölskyldu er grundvallaratriði í nálguninni og er lagt áherslu á að upplýsingaflæði sé til staðar. \nMarkmið þessarar ritgerðar er að taka saman þekkingu sem snýr að fjölskyldum með fötluð börn og þjónustu við þær. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum: Hver er reynsla fjölskyldna fatlaðra barna af þjónustu? Hvernig geta félagsráðgjafar nýtt þekkingu sína í starfi með fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra? Niðurstöður sýna að hægt er að rekja ánægju foreldra til þjónustu eftir því hversu fjölskyldumiðuð þjónustan er. Aftur á móti er lagt áherslu á skýr samskipti og upplýsingaflæði á milli fagaðila og fjölskyldu í þessari nálgun og virðast foreldrar ekki fá það uppfyllt. Þá sýna foreldrar yngri barna almennt meiri ánægju gagnvart þjónustu en verða gagnrýnni á hana eftir því sem börnin eldast. Félagsráðgjafar tilheyra einni af þeim fagstéttum sem þjónusta fatlað fólk en þekking og faglegt hlutverk þeirra gera þá vel til þess fallna að vinna að þörfum þeirra. Þá geta þeir gegnt mikilvægu hlutverki í vinnu með fjölskyldum fatlaðra barna þar sem fagstéttin leggur grundvallar áherslu á notkun heildarsýnar þar sem unnið er með hag fjölskyldunnar að leiðarljósi.
Source: Skemman
Author: Lovísa Mjöll Kristjánsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038155975
Cites: 19
Cited by:
Related to: 10