Work

Hjúpgerðir pneumókokka í heilbrigðum og sjúklingum - Nýtt landslag eftir bólusetningar

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Pneumókokkar eru mikilvægur sýkingavaldur hjá mönnum um allan heim. Helstu sýkingar af völdum pneumókokka eru miðeyrnasýkingar, lungnabólga og ífarandi sýkingar. Pneumókokkar geta einnig verið eðlilegur hluti af bakteríuflóru í nefkoki án þess að valda einkennum. \nFjölsykruhjúpur pneumókokka er mikilvægur þáttur í meinvirkni þeirra. Fundist hafa um 100 mismunandi hjúpgerðir. Fylgst hefur verið með dreifingu hjúpgerða hjá heilbrigðum leikskólabörnum og í sýnum frá sjúklingum frá árinu 2009. Árið 2011 hófst bólusetning með Synflorix gegn 10 hjúpgerðum (1, 4, 5, 6B, 7F, 9V, 14, 18C, 19F og 23F) pneumókokka á Íslandi. Síðan þá hefur dreifing hjúpgerða hjá heilbrigðum berum og í sýkingum tekið miklum breytingum. \nMegin markmið rannsóknarinnar var að greina dreifingu hjúpgerða pneumókokka í sýnum frá heilbrigðum leikskólabörnum og í sjúklingasýnum árin 2018 og 2019. Ennfremur að greina hvort nýjar fjölónæmar hjúpgerðir séu að koma fram í stað þeirra sem bólusett er gegn og kanna dreifingu hjúpgerða sem eru í bóluefninu. Auk þess að greina hvort ónæmar hjúpgerðir sem er ekki að finna í bóluefninu hafi festiþræði. \nVið rannsóknina voru notaðir pneumókokkastofnar sem greindust úr sýnum frá heilbrigðum leikskólabörnum (n=507) sem tekin voru í mars 2018 og 2019. Einnig voru notaðir pneumókokkastofnar sem greindust í sýnum hjá Sýkla- og veirufræðideild Landspítala árin 2018-2019 frá þrem mismunandi sýnaflokkum, miðeyrnasýkingum (n=63), sýkingum frá neðri öndunarfærum (n=214) og stofnar úr ífarandi sýkingum (blóð, mænuvökva) (n=68). \nHjúpgerð 6C var algengagsta hjúpgerðin í öllum sýnaflokkum á rannsóknartímabilinu nema í ífarandi sýkingum þar sem hjúpgerð 3 var algengust. Hjúpgerð 6C reyndist einnig vera ríkjandi fjölónæma hjúpgerðin í öllum sýnaflokkum nema ífarandi sýkingum þar sem að hjúpgerðir 14, 15A og 33F voru jafn oft fjölónæmar. \nStofnar með minnkað næmi fyrir pensilíni fundust í 33,9% (289/852) sýnum og fjölónæmir pneumókokkastofnar í 22,2 % (189/852) sýnum. \nStofn af hjúpgerð sem Synflorix veitir vörn gegn greindist aðeins í einu sýni frá heilbrigðu barni og aldrei í sýnum úr miðeyrnasýkingum. Synflorix hjúpgerðir fundust í 11,7% (25/214) sýnum úr sýkingum í neðri öndunarfærum og 22,1% (15/68) úr ífarandi sýkingum. \nFestiþræðir fundust ekki hjá þeim ónæmum stofnum sem voru prófaðir af hjúpgerð 15A en allir stofnar af hjúpgerð 35B með minnkað næmi gegn pensilíni sem prófaðir voru greindust með festiþræði af gerð 1. \nRannsóknin sýndi að hjúpgerð 6C er orðin ríkjandi hjúpgerð hér á landi og að bóluefni hefur nánast útrýmt þeim hjúpgerðurm sem bólusett er fyrir í sýnum úr nefkoki og miðeyrum. Einnig var sýnt fram á að fjölónæmum stofnum og stofnum með minnkað næmi af hjúpgerðum sem ekki er bólusett fyrir fer fjölgandi.
Source: Skemman
Author: Gerður Halla Gísladóttir
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038229826
Cites: 91
Cited by:
Related to: 10