Hlutverk grunnskóla við undirbúning nemenda fyrir áframhaldandi nám. „Hvert einasta ár skiptir máli"
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessara rannsóknar var að varpa ljósi á sýn skólastjórnenda í grunnskólum í Reykjavík á því hlutverki skólanna að undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám, með áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn brotthvarfi. Rannsóknin byggir á hálf- opnum viðtölum við sex skólastjóra. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að allir viðmælendurnir töldu það hlutverk skólans að undirbúa nemendur undir framhaldsnám. Í undirbúningnum fólst meðal annars að efla alla þrjá undirþætti skuldbindingar en þó var aðeins meiri áhersla á vitsmunalega skuldbindingu heldur en tilfinningalega,- eða hegðunarlega skuldbindingu. Athygli vakti að nánast allir viðmælendurnir voru sammála því að hinn eiginlegi undirbúningur hæfist ekki fyrr en á unglingastigi. Þátttakendur voru allir á sama máli með að byrja þyrfti fyrirbyggjandi aðgerðir gegn brotthvarfi í grunnskóla. En þær hindranir sem skólastjórar mæta verða til þess að erfitt getur reynst að vinna markvisst að fyrirbyggjandi starfi. Vonast er til að \nniðurstöðurnar geti nýst stefnumótunaraðilum, skólastjórnendum og starfsfólki grunnskóla til að fá betri hugmynd um hvað það er sem þarf að leggja meiri áherslu á í grunnskólum til að fyrirbyggja brotthvarf úr framhaldsskólum.
Source: Skemman
Author: Lýdía Kristín Sigurðardóttir 1978
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: school principals, school leadership, student motivation, student engagement, student independence, student self-regulation, student self-esteem, student self-discipline, student self-control, student self-organization, student self-achievement, student self-competence, student self-attitude
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038311643
