Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Auglýsing er kynning sem inniheldur upplýsingar um vöru eða þjónustu vörumerkis. Auglýsingar eru miðaðar að neytendum og hafa mikilvæg áhrif á viðhorf og hegðun þeirra. Viðhorf áhorfenda er almennt hagstætt eða óhagstætt mat á auglýsingunni í huga neytenda og getur þetta haft í för með sér jákvæða eða neikvæða ímynd á vörumerkið. Markmið þessara rannsóknar var að athuga hvort að nekt hafi áhrif á viðhorf áhorfenda til ilmvatns auglýsinga frá Dolce Gobbana og einnig til vörumerkisins. Rafrænum spurningalista var dreift á þátttakendur. Notað var 3 (kyn fyrirsætu) x 2 (klæðnaður fyrirsætu) tilraunasnið. Kyn fyrirsætu tók þrjú gildi, karlfyrirsæta, kvenfyrirsæta og bæði karl- og kvenfyrirsæta. Klæðnaður fyrirsætu tók tvö gildi, fyrirsæta klædd í sundföt og fyrirsæta klædd í útivistarfatnað. Þátttakendur voru beðnir um að svara spurningum varðandi viðhorf sitt til auglýsingarinnar og vörumerkis. Alls tóku 195 manns þátt í tilrauninni. Niðurstöður tilraunarinnar sýndu ekki fram á marktækan mun á viðhorf til auglýsinganna né til vörumerkis. Niðurstöðurnar benda því til þess að nekt hafi ekki neikvæðari áhrif á viðhorf til auglýsinga á ilmi Dolce Gobbana en útivistafatnaður. Þessi niðurstaða gefur til kynna að áhorfendur eru ekki að finna fyrir mikilli truflun eða upplifun neikvæðra hegðunar út frá nekt í auglýsingum. En hins vegar getur þetta líka gefið til kynna að áhorfendur eru ekkert líklegri til að kaupa vöru ef hún er auglýst með nekt.
Source: Skemman
Author: Aníta Karen Sigurðardóttir 1999-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038345203
