Work

A human cell line for studying the role of the SMOR173C variant

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Íslensk erfðagreining fann nýlega sjaldgæfa mislestursbreytingu í SMO (smoothened) geninu sem er talin valda aukinni hættu á slitgigt í mjöðm. Slitgigt er ein algengasta gerð liðagigtar sem er sársaukafullur hrörnunarsjúkdómur í liðum. Slitgigt er algengur sjúkdómur hjá einstaklingum eftir miðjan aldur og leiðir oft til meiriháttar líkamlegrar vangetu og jafnvel örorku. Ekki er til lækning við slitgigt og þær meðferðir sem til eru í dag við sjúkdómnum eru takmarkaðar. \nMislestursbreytingin sem fannst í SMO geninu veldur því að jákvætt hlöðnu amínósýrunni arginín (Arg eða R) er skipt út fyrir óhlöðnu en skautuðu amínósýruna systín (Cys eða C). Þetta er í fyrsta skipti sem stökkbreyting í hedgehog boðleiðinni er tengd við aukna hættu á slitgigt. Stökkbreytingin er staðsett í utanfrumuhneppi SMO próteinsins og er talin trufla bindingu kólesteróls. Vísindamenn sem starfa á Rannsóknarstofa Eiríks Steingrímssonar í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu vinna nú að rannsaka mislestursbreytinguna í SMO geninu til þess að öðlast betri skilning á virkni SMO próteinsins og áhrifa mislestursbreytingarinnar á hedgehog boðleiðina í tengslum við aukna hættu á slitgigt. Til þess að gera það, er mikilvægt að hægt sé að yfirtjá stökkbreytta próteinið í mannafrumulínu. Hingað til hefur ekki verið hægt að sjá áhrif yfirtjáningar fyrir tilstilli tjáningar á villigerðar SMO í frumunum. Markmið þessa verkefnis var að búa til mannafrumulínu, þar sem villigerðar SMO genið er fellt út, þannig að hægt sé að skoða áhrif yfirtjáningarinnar.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038361794
Cites: 64
Cited by:
Related to: 10