Work

Hvernig má gera græna skatta fýsilegri? Hugmyndir reifaðar

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum árum og áratugum hefur losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið aukist til muna. Samhliða þeirri þróun hefur hitastig á jörðu hækkað ískyggilega hratt. Áður fyrr var talað um hlýnunar jarðar en nú er staðan orðin svo alvarleg að hugtakið hamfarahlýnun þykir gefa raunsærri mynd. Skilningur á alvarleika loftslagsvandans hefur aukist með árunum og í dag er mikill vilji til að finna lausnir, bregðast við og draga úr þeim vanda sem vofir yfir. Vísindafólk hefur varað við afleiðingum þess að hækkun hitastigs fari fram úr 2°C. Parísarsamkomulagið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda tekur mið af þessum varnaðarorðum og kveður á um hnattrænt kolefnishlutleysi upp úr 2050. Þau ríki sem eiga aðild að samkomulaginu hafa skuldbundið sig til að draga úr losun kolefnis og eru grænir skattar, og þá sérstaklega kolefnisskattar, eru eitt öflugasta vopnið í þeirri baráttu. Með grænum sköttum má verðleggja neikvæð ytri áhrif af losun gróðurhúsalofttegunda og þannig tryggja að sá sem mengar greiði allan kostnað vegna mengunar, samfélagslegan kostnað einnig. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á raunveruleg áhrif grænna skatta og skilvirkni þeirra sömuleiðis. Þá hafa stjórnvöld víða um heim valið að nýta græna skatta í baráttunni við hamfarahlýnun. Grænir skattar eru þó umdeildir og hefur borið á mótstöðu gegn slíkri skattlagningu, bæði meðal almennings og fyrirtækja. Skert samkeppnishæfni fyrirtækja og þyngri skattbyrði tekjulægri heimila eru þeir þættir sem valda hvað mestum áhyggjum í tengslum við innleiðingu og hækkanir grænna skatta. Mótstaðan byggist gjarnan á vanþekkingu eða vantrausti í garð stjórnvalda. Ef stuðningur við aðgerðir og stefnumál yfirvalda er lítill eru auknar líkur á því að lýðræðislegt fyrirkomulag muni á endanum grafa undan umdeildri stefnu. Það er því mikilvægt að draga úr mótstöðu við aðgerðir, líkt og álagningu grænna skatta, sem ætlað er að takmarka neikvæð áhrif á umhverfið. Vel hannaðir skattar, skynsamleg nýting skatttekna, aukið gagnsæi og upplýsingagjöf hafa jákvæð áhrif á viðhorf skattgreiðenda. Séu þessir þættir hafðir til hliðsjónar við innleiðingu og beitingu grænna skatta, má því draga úr mótstöðu og um leið, hámarka árangur af skattlagningunni.
Source: Skemman
Author: Sara Þrastardóttir Sördal
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038398986
Cites: 34
Cited by:
Related to: 10