Work

Hvað hvetur fólk í starfi?

Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Starfshvatning er hugtak sem hefur gjarnan verið fjallað um og rannsakað og þá sér í lagi áhrif hennar á starfsfólk og framleiðni fyrirtækja. Það er misjafnt hvað hvetur hvern og einn og er mikilvægt fyrir stjórnendur að kynna sér hvað hvetur fólk í starfi til þess að geta ákveðið hvaða leiðir séu viðeigandi í því að umbuna starfsmönnum. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna hvað það er sem hvetur starfsfólk í starfi og hvort að munur sé á milli starfsmanna eftir kyni, aldri, starfsaldri, menntun, hjúskaparstöðu og hvort þeir eigi afkvæmi eða ekki. Markmiðið er einnig að athuga hvort að stjórnendur þeirra hafi sömu sýn á það hvað hvetji starfsmenn í starfi. \nRannsóknin var lögð fyrir starfsmenn og stjórnendur hjá einu stærsta ráðgjafarfyrirtæki Íslands. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur með rafrænu formi. \nNiðurstöðurnar leiddu í ljós að áhugavert starf var þátttakendum helsta hvatningin í starfi. Þar á eftir komu góð laun, starfsöryggi og góðar vinnuaðstæður. Mikilvægisröðun stjórnenda var ekki mjög ólík mikilvægisröðun starfsmanna. Hins vegar var að finna þó nokkurn mun á milli kynjanna, eftir aldri, starfsaldri, menntun, hjúskaparstöðu og hvort viðkomandi ætti börn eða ekki.
Source: Skemman
Author: Margrét Kristjana Jónsdóttir 1983
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038430865
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10