Work

Hinn andlegi hetjuskapur: Birtingarmynd hetjuskaparins í Gilgameskviðu, Biblíunni, og Hringadróttinssögu

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Hetjur og hetjudáðir eru eitt megin aðdráttarafl frásagna. Sögur af hetjum hafa alltaf vakið mikla lukku meðal fólks, það hrífst og dáist af afrekum þeirra og heldur sögum þeirra á lífi í munngeymd og í bókmenntum. Hefðbundnar staðalímyndir um hetjur eru oft sigursælir stríðsmenn sem hafa getuna til þess að vega hvaða óvin sem er, og búa yfir ógurlegum styrk. Hetjuskapur getur hins vegar einnig falist í hugvitinu og hinu andlega, mikill styrkur felst oft í því að vita hvenær sé tímabært að leggja niður vopnin, leyfa vitinu að ráða för, og þjást jafnvel í þágu einhvers æðri málstaðar. Í þessari ritgerð verður fjallað um hetjuskapinn og ýmsar óhefðbundnar birtingarmyndir hans. Tekin verða fyrir þrjú verk frá ólíkum tímum bókmenntasögunnar og hetjuskapur aðalpersóna þeirra, Gilgameskviðu, valinna rita úr Biblíunni og Hringadróttinssögu. Dregnar verða fram hliðstæður á milli þessara verka og sýnt hvernig aðrar hugmyndir um hetjuskap koma fram í þeim öllum en þær sem gjarnan er haldið á lofti.
Source: Skemman
Author: Stefán Eðvarð Eyjólfsson
Language: Icelandic
Subfield: History
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038433807
Cites: 10
Cited by:
Related to: 10