Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Líkamsrækt og íþróttir eru vinsælar um allan heim og stunda margir einstaklingar slíka þjálfun. Fyrir, á meðan og eftir æfingu er mikilvægt að nærast vel og því skiptir mataræðið gríðarlega miklu máli í tengslum við hreyfingu. Kolvetni er mikilvægt orkefni og þá sérstaklega nauðsynlegt fyrir einstaklinga sem stunda reglulega hreyfingu. Ritgerðin er heimildaritgerð og skoðaðar eru rannsóknir um kolvetnaneyslu og íþróttaiðkun. Ásamt því að skoðaðar eru mismunandi vísindagreinar um kolvetni og mikilvægi þeirra í mataræði. Mikilvægi kolvetnaneyslu fyrir íþróttafólk var skoðað og voru helsu niðurstöðurnar þær að kolvetni eru mikilvæg fyrir þá sem stunda íþróttir. Ráðlagt er að Íþróttafólk neyti meira magn kolvetna en almenningur til þess að uppfylla orkuþörf sína yfir æfingar og/eða keppni. Með aukinni kolvetnaneyslu getur íþróttafólk bætt árangur sinn. Mikilvægt er að íþróttafólk geri sér grein fyrir mikilvægi kolvetnaneyslu í íþróttum. Þó svo að íþróttafólk telji sig hafa þekkingu á góðu mataræði, er gott að hafa ráðleggingar til hliðsjónar sem auðveldar þeim að fara eftir þeim.
Source: Skemman
Author: Guðfinna Gróa Pétursdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Nutrition and Dietetics
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038603343
