Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Áráttu- og þráhyggjuröskun (e. obsessive-compulsive disorder [OCD]) er kvíðaröskun sem hefur áhrif á fólk um allan heim. Röskunin einkennist meðal annars af þráhyggju, áráttu og kvíða sem erfitt er að stjórna og truflar daglegt líf. Mikið hefur verið gert af rannsóknum á OCD með það markmið að greina orsakir og afleiðingar röskunarinnar. Í þessari rannsókn verða tvær nýjar breytur skoðaðar með tilliti til þess að athuga hvort þær hafi áhrif á OCD. Annars vegar er það breytan siðferðislegar tilfinningar og svo er það breytan trúarbrögð. Við gerð þessarar rannsóknar var notast við sjálfsskýrsluspurningarlista. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 275 talsins. Fimm spurningar voru settar fram til að mæla/meta trúarlegt gildi þátttakenda en þær snéru að: heimsókn á trúarlega staði, að biðja, lestur ritningar, fjárframlög til trúarbragða og mikilvægi trúarbragða. Notast var við siðferðilega tilfinninga kvarðann sem Ozcanli o.fl. (2019) þróaði til að mæla tíðni mismunandi tegunda siðferðilegra tilfinningaviðbragða. Padua-Revised kvarðinn (PI-R) var notaður til að mæla þráhyggju- og áráttueinkenni. Sterk fylgni fannst milli OCD og siðferðilegra tilfinninga. Einnig fannst sterk fylgni milli OCD og mikilvægi trúarbragða. Hins vegar fannt lítil og/eða miðlungs fylgni milli OCD og trúarlegra gilda. Niðurstöðurnar sýna fram á þörfina á frekari rannsóknum og lagt er til að gerð verði tilraunarannsókn.
Source: Skemman
Author: Sigurður Páll Sveinbjörnsson
Institution: University of Akureyri
Language: English
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038710100
