Work

Íslenskukennsla tvítyngdra nemenda í tíu grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu.

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Menningarleg fjölbreytni hefur aukist mikið í íslensku samfélagi á undanförnum árum. Samfara þessari þróun hefur tvítyngi í íslenskum skólum aukist og mikilvægi þess að efla íslenskukunnáttu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Færni tvítyngdra nemenda í íslensku er forsenda þess að þeir geti aflað sér menntunnar í íslensku skólakerfi og verði virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Skilyrði og tilhögun íslenskukennslu tvítyngdra nemenda skiptir því miklu fyrir horfur þeirra í íslensku skólakerfi og framtíð í íslensku samfélagi. \n\tMarkmið rannsóknarinnar var að kanna skilyrði og tilhögun íslenskukennslu tvítyngdra nemenda í tíu grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Tíu kennarar í jafnmörgum grunnskólum í fjórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í rannsókninni. Með einni undantekningu höfðu kennararnir umsjón með íslenskukennslu tvítyngdra nemenda í sínum skóla. Margir viðmælendanna höfðu lokið framhaldsmenntun á sviði menntavísinda og starfsreynsla þeirra var á bilinu fimm til 43 ár. Reynsla þeirra af kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku var á bilinu eitt til 24 ár. \n\tTekin voru hálfopin einstaklingsviðtöl við kennarana tíu. Viðtalsrammanum var skipt í fjóra þætti sem tengdust skólanum, kennslunni, samstarfi kennara og aðlögun nemenda. Í hverjum þætti voru fimm til sex spurningar. Auk þess voru allir viðmælendurnir spurðir þriggja upphafsspurninga um bakgrunn þeirra. Í lok viðtalsins voru viðmælendurnir beðnir um að ræða um það sem þeim finndist vel gert og mætti bæta í tengslum við málaflokkinn almennt í íslensku samfélagi. \n\tMeginniðurstöður rannsóknarinnar eru að þrennskonar skipulag er í íslenskukennslu tvítyngdra nemenda í grunnskólunum tíu. Í fyrsta lagi fer kennsla tvítyngdra nemenda fram í móttökudeild þar sem erlendir nemendur fá markvissa kennslu í íslensku og aðstoð við aðlögun í að minnsta kosti eitt ár áður en þeir taka fullan þátt í skólastarfi inni í almennum bekk. Í öðru lagi er íslenskukennslan hluti af sérkennslu skólans. Í þriðja lagi er íslenskukennsla tvítyngdra nemenda á ábyrgð eins kennara sem sinnir kennslunni samhliða umsjónarkennslu þegar hann hefur lausar stundir í stundatöflunni. Kennslan fer yfirleitt fram í hóp en það eru aldrei fleiri en sjö nemendur í hverjum hóp í skólunum tíu. Ef þörf krefur fá nemendurnir einstaklingskennslu. Áhersla er lögð á kennslu grunnorðaforða en eftir því sem nemendurnir eru eldri því meira tengist íslenskukennslan námsefni nemenda. Samstarf milli umsjónarkennara tvítyngdra nemenda og þeirra kennara sem kenna þeim íslensku sem annað mál er með tvennskonar hætti. Annarsvegar er samstarfið reglulegt í formi funda en hins vegar á samstarfið sér stað í óformlegum aðstæðum og ekki með reglulegu millibili. \n\tHelstu samskiptaleiðir viðmælenda við foreldra eru í gegnum tölvupóst eða í viðtölum. Túlkar eru alltaf kallaðir til í viðtölum ef þörf er á því. Almennt er ekki boðið upp á móðurmálskennslu fyrir tvítyngda nemendur á skólatíma heldur sækja nemendurnir móðurmálskennslu í tungumálaskólum um helgar. Það er á ábyrgð foreldra að börnin þeirra sæki nám í tungumálaskólunum. \n\tMóttaka tvítyngdra nemenda er misjöfn í skólunum tíu og ekki er alltaf farið eftir móttökuáætlun. Viðmælendur hafa það samt sem áður sameiginlegt að boða foreldra og nemendur í móttökuviðtal áður en nemendurnir hefja nám í skólanum. Umhverfi skólanna er ekki hannað með erlenda nemendur í huga nema að því leyti að sjónrænar stoðir eru í kennslustofum. Almennt taka tvítyngdir nemendur jafnmikinn þátt í tómstundum utan skólatíma og aðrir nemendur í skólunum tíu en það er algengt að ungir tvítyngdir nemendur taki minni þátt í frístundastarfi að loknum skóladegi. \n\tÍ heild varpa niðurstöðurnar ljósi á skilyrði og fyrirkomulag íslenskukennslu tvítyngdra nemenda í tíu grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Ályktanir út frá niðurstöðunum eiga því við þessa skóla. Í ljósi niðurstaðnanna og mikilvægi viðfangsefnisins væri áhugavert að gera aðra rannsókn til að athuga hversu vel niðurstöðurnar eiga við aðra grunnskóla.Hægt er að nýta inntak og niðurstöður þessarar rannsóknar til þess að skoða skilyrði og tilhögun íslenskukennslu tvítyngdra nemenda á öllu landinu en nota þá annarskonar rannsóknaraðferðir. Jafnframt væri áhugavert að skoða einstaka þætti rannsóknarinnar betur.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038758742
Cites: 29
Cited by: 2
Related to: 10