Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Ætla má að fjöldi Íslendinga hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku. Í ljós hefur komið að afleiðingar þess geta haft alvarleg áhrif á andlega, líkamlega og félagslega heilsu þolenda. Þá geta afleiðingarnar einnig haft áhrif á nánustu aðstandendur þolenda, meðal annars maka þeirra og börn. Þrátt fyrir þær upplýsingar sem til eru um afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í æsku virðist vera lítið um sérhæfð meðferðarúrræði fyrir þennan hóp hér á landi. \nMeistaraverkefni þetta er tilraunverkefni og er markmið þess að leggja grunn að paranámskeiði fyrir þolendur kynferðisofbeldis í æsku og maka þeirra. Námskeiðið er byggt upp á fræðslu og umræðum og er tilgangur þess að auka skilning þátttakenda á afleiðingum kynferðislegs ofbeldis í æsku og kynna leiðir sem hægt er að styðjast við á bataleiðinni. Í víðara samhengi er verkefninu ætlað að vera framlag til aukinnar þekkingar fagfólks á afleiðingum ofbeldisins fyrir þolendur og aðstandendur þeirra, sem og möguleikum í meðferð með þeim. \n \nHelstu hugtök: Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þolendur kynferðisofbeldis í æsku, kynferðisleg misnotkun, parasambönd, parameðferð.
Source: Skemman
Author: Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir 1981
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038809308
