Work

Kerfisbundinn rasismi og aðskilnaður í nútímasamfélagi Bandaríkjanna. Á hvaða hátt stuðlar söguleg arfleifð Jim Crow lagana og kerfisbundinn rasismi að núverandi ástandi í Bandaríkjunum?

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er farið í flókinn vef sögulegra arfleiða sem Jim Crow lögin og kerfisbundinn rasismi hafa skilið eftir sig, og skoðuð eru víðtæk áhrif þeirra á nútímasamfélagi Bandaríkjanna. Fræðilegur rammi ritgerðarinnar fer í gegnum hugtök kynþáttar, rasisma, gagnrýninnar kynþáttakenningar, litblindu og kerfisbundinn rasisma. Með þessum fræðilega grunni er vandlega farið í tilkvikskaflann en hann fjallar um Jim Crow tímabilið, fjöldafangelsunar faraldurinn, borgararéttindahreyfingunna, aðskilnað í húsnæðismálum og skólum og nútíma baráttu gegn kynþáttaójöfnuði, sem felst í Black Lives Matter hreyfingunni og rætt verður um ofbeldi lögreglu i sambandi við þá hreyfingu. Niðurstöður leiða í ljós hvernig aðskilnaður húsnæðismála og misrétti einstaklinga í skóla er nátengt og skapar það leiðina frá skólum til fangelsis. Þessi leið er stór þáttur í hinu útbreidda vandamáli um fjöldafangelsun. Kaflinn afhjúpar langvarandi ójöfnuð sem jaðarsett samfélög standa frammi fyrir og sýnir hvernig sögulegt óréttlæti heldur áfram að hafa áhrif á sérstaklega hvað varðar húsnæðismál, menntun, samskipti við lögreglu og fanngelsismál. Ritgerð þessi leggur áherslu á samband sögulegra arfleiða og áskorana samtímans og varpar ljósi á kerfisbundnar rætur kynþáttaójöfnuðar með því að flétta saman þræði misréttis, félagslegra viðmiða og rótgróins rasisma kerfisins, sem býður upp á alhliða skilning á margþættum leiðum sem fortíð Bandaríkjanna heldur áfram að móta nútíð sína.
Source: Skemman
Author: Sigríður Birta Björnsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038851379
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10