Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Hlutfall kvenna í meðferð hjá SÁÁ hefur aukist gífurlega en árið 1995 var sett á fót sérstök meðferð fyrir konur með áfengis- og vímuefnavanda. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á kvennameðferðinni hérlendis. \nTilgangur: Að kanna reynslu kvenna sem farið hafa í gegnum kvennameðferð SÁÁ af meðferðinni, þ.e., hvað er jákvætt, hvað virkar og hvað mætti bæta. \nAðferð: Rannsóknin var fyrirbærafræðileg og voru tekin djúpviðtöl við tíu konur. Notast var við þægindaúrtak. Þátttakendur voru konur sem voru á endaspretti kvennameðferðar SÁÁ eða höfðu lokið meðferð. \nNiðurstöður: Konurnar voru almennt ánægðar með kvennameðferðina þrátt fyrir að þeim fyndist að dýpra mætti fara í ákveðin málefni og auka mætti innleiðingu fjölskyldunnar. Sjö meginþemu voru greind í viðtölunum: ,,Mikil andleg og líkamleg vanlíðan, ,,Fjölskyldan”, ,,Fórnarlamb ofbeldis”, ,,Skömmin og sektarkenndin er bara svo mikil”, ,,Ofboðslega gott að vera í kvennameðferðinni”, ,,Nýtt líf- önnur manneskja” og ,,Viðbót við kvennameðferð”. \nÁlyktun: Kvennameðferðin er sérsniðin að þörfum kvenna. Niðurstöður sýndu að allar konurnar höfðu orðið fyrir ofbeldi og hafði það mikil áhrif á neysluna. Mikilvægt er að vinna með slíka þætti strax í upphafi og meðan á meðferð stendur. Einnig fannst þeim að þátttaka fjölskyldunnar hefði mátt vera meiri og því gæti hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar hentað vel í kvennameðferðinni.
Source: Skemman
Authors: Heiða Björk Birkisdóttir 1984, Heiða Lind Baldvinsdóttir 1985
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038883317
