Work

Komur erlendra ferðamanna á heilbrigðisstofnanir á Íslandi á árunum 2009-2015: Ástæður komu og sértækar hjúkrunarþarfir

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Ferðalög hafa stóraukist á heimsvísu síðustu ár og Ísland sem áfangastaður er þar engin undantekning. Ferðamenn geta verið misvel í stakk búnir til að takast á við nýjar og óþekktar aðstæður og þurfa því oftar en ekki að leita sér heilbrigðisþjónustu á þeim stöðum sem þeir heimsækja, bæði vegna slysa og veikinda. Hingað til hefur ekki verið ljóst hverjar ástæður komu ferðamanna á heilbrigðisstofnanir á Íslandi eru né hver dreifing á komum er eftir aldri, kyni, árstíðum og landshluta. \nTilgangur og markmið: Annars vegar að skoða tíðni koma erlendra ferðamanna á heilbrigðisstofnanir á Íslandi á árunum 2009-2015 og rýna í helstu ástæður komu með tilliti til kyns, aldurs, árstíma og landshluta og hins vegar að áætla hjúkrunarþarfir þessara einstaklinga. Markmið rannsóknarinnar var að draga fram hvað betur mætti fara í veittri þjónustu, ásamt því að efla forvarnir og fræðslu til þess að sporna gegn slysum og veikindum erlendra ferðamanna og bæta gæði þjónustunnar hjá þeim sem þurfa á henni að halda. \nAðferðir: Gerð var aftursæ lýsandi rannsókn á gögnum úr lágmarksskráningu vistunarupplýsinga frá Embætti landlæknis um allar komur einstaklinga 18 ára og eldri með gervikennitölur á heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðis 1. janúar 2009 til og með 31. desember 2015. Gerð var lýsandi tölfræðigreining á kyni og aldursflokkum, ástæðum komu út frá ICD-10 greiningum, komutíma og heilbrigðisumdæmi. Tölfræðileg marktækni á samböndum milli breyta var könnuð með kí-kvaðrat prófi. \nNiðurstöður: Alls voru 22.648 komur á heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðis á árunum 2009-2015. Meðalaukning koma var 15% á milli ára. Alls voru skráðar 17.288 ástæður komu. Af þeim voru 9.386 (54,3%) vegna veikinda, 5.170 (29,8%) vegna slysa og 2.732 (16,0%) vegna annarra ástæðna. Komur vegna veikinda voru hlutfallslega fleiri á veturna (67,5%) en á sumrin (63%; p<0,001). Komur vegna slysa voru hlutfallslega fleiri hjá konum (37,1%) en körlum (33,8%; p<0,001). Komur vegna slysa hækkuðu marktækt með hækkandi aldri (p<0,001). Komur vegna veikinda voru marktækt algengastar í Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja (83%; p<0,001). \nÁlyktanir: Auknu álagi í íslensku heilbrigðiskerfi vegna erlendra ferðamanna hefur verið lýst en rannsókn þessi sýnir að að meðaltali leituðu 1% þeirra sem komu til Íslands heilbrigðisþjónustu á einhverjum tímapunkti vegna mismunandi ástæðna eftir árstíma, landshluta, kyni og aldri. Til að greina enn frekar hjúkrunarþarfir erlendra ferðamanna og bæta heilbrigðisþjónustu sem þeim er veitt er nauðsynlegt að bæta skráningu heilsufarsupplýsinga til þess að afla og greina viðeigandi gögn. Þörf er á að bæta forvarnir og fræðslu sem ferðamönnum er veitt í ferðum um Ísland.
Source: Skemman
Authors: Elín Ósk Hjartardóttir, Jóhanna Rut Óskarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7038889282
Cites: 31
Cited by:
Related to: 10