Work

„Lykillinn er að allir taki höndum saman“: Tilviksrannsókn á einkennum nálgunar menntayfirvalda á breytingar á menntakerfinu

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að skýra áhrif aðstæðubundinna þátta í ytra umhverfi og innra skipulagi mennta- og barnamálaráðuneytisins á nálgun þess á breytingar á menntakerfinu. Unnið er út frá viðteknum kenningum samtímans um breytingastjórnun stofnana. Notast er við tilviksrannsókn á þremur umfangsmiklum breytingum á menntakerfinu og eru tilvikin borin saman í þeim tilgangi að skýra áhrif ólíkra áhrifaþátta á nálgun ráðuneytisins á breytingar á menntakerfinu og útkomu breytingaferlanna. Tilvikin eru: 1. Stytting námstíma til stúdentsprófs, 2. Aukið svigrúm framhaldsskólanna til að móta eigin skólanámskrár og 3. Breytt fyrirkomulag samræmds námsmats í grunnskólakerfinu með afnámi samræmdra könnunarprófa og þróun heildstæðs námsmatstækjasafns undir heitinu Matsferill. Tekin voru eigindleg viðtöl við sérfræðinga mennta- og barnamálaráðuneytisins, stjórnendur í framhaldsskólum, grunnskólastjóra og sérfræðing á skólaskrifstofu sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ráðuneytið hafi yfirleitt nálgast breytingar á menntakerfinu út frá skipulagðri nálgun á breytingar, ítarlegum undirbúningi og samráði við hagsmunaaðila, en lagt framkvæmd breytinganna í hendur undirstofnana sinna og hvorki veitt innleiðingunni stuðning né eftirfylgni. Vísbendingar eru um breytta nálgun ráðuneytisins frá árinu 2021 eftir endurskipulagningu innri starfshátta, en umfang samráðs við hagsmunaaðila í menntakerfinu hefur aukist til muna og innleiðingu hefur verið tryggður stuðningur. Viðmælendur telja mikilvægt að viðhalda þessari þróun.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039107240
Cites: 8
Cited by:
Related to: 10