Work

Lærum saman og vinnum saman : stjórnandi rýnir í starfsaðstæður sínar og stuðning við kennara og fagmennsku

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessa rannsóknarverkefnis sem er starfendarannsókn var að skoða starf aðstoðarskólastjóra með gagnrýnum augum og finna út hvernig hægt væri að forgangsraða verkefnum eftir mikilvægi þeirra fyrir faglegt starf skólans. Upphafið að verkefninu má rekja til námskeiðs í starfendarannsóknum við Háskóla Íslands vorið 2017. Þar fékk ég tækifæri til að ígrunda og skoða starf mitt og starfsaðstæður sem aðstoðarskólastjóri í grunnskóla. \nGögnum fyrir rannsóknina var aflað í Sólaskóla (dulnefni). Gögnin eru rannsóknardagbók þar sem ég skráði vangaveltur mínar og hugrenningar frá upphafi tímabilsins sem var í janúar 2017. Í gögnunum eru auk rannsóknardagbókarinnar skráning á verkefnum hvers vinnudags í hálfan mánuð, starfslýsing aðstoðarskólastjóra, verkefnalisti með helstu verkefnum hans yfir skólaárið auk einkunnarorða skólans. Tekin voru þrjú hálfopin viðtöl við kennara, skráðar vettvangsnótur á fjórum teymisfundum kennara og einum stjórnendateymisfundi. \nHelstu niðurstöður gefa til kynna að aðstoðarskólastjórar lenda oft í hlutverki stuðningsaðila fyrir kennara og annað starfsfólk. Fram kom að kennarastarfið er álagsstarf og að kennurum þótti mikilvægt að fá stuðning í formi handleiðslu eða jafningjastuðnings. Kennarar í skólanum sjá tækifæri í samvinnu og samstarfi sem gefa þarf meira rými í skipulagi skólastarfs. Kennurum í skólanum er umhugað um velferð nemenda sinna og eru tilbúnir að leggja mikið á sig þeim til handa. Forföll, sem eru tíð í skólanum, hvíla þungt á stjórnendum og kennurum og brýnt að finna úrræði til að létta á álagi vegna þeirra. Fundir eru ekki taldir nógu markvissir og kennarar óska eftir vinnufundum þar sem unnið er saman að skipulagningu náms og kennslu. Trú þeirra kennara sem rætt var við á samgetu kennarahópsins til að efla nám og kennslu í skólanum gefur tækifæri til að horfa bjartsýnum augum fram á veginn. Samgeta styður við lærdómssamfélagið og þar með öfluga skólaþróun og er sannkallaður hornsteinn þess.
Source: Skemman
Author: Ellen Gísladóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039129793
Cites: 25
Cited by:
Related to: 10