Kynbundinn munur á styrk og hreyfimynstrum 9-12 ára ungmenna við fallhopp og gabbhreyfingar
Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið: Faraldsfræðirannsóknir sýna að konum er hættara við meiðslum á neðri útlimum en körlum, en flestar rannsóknir ná til eldri þátttakenda og lítið hefur verið kannað hvort þessi kynbundni munur komi fram fyrr. Eldri íþróttaiðkendur hafa verið rannsakaðir mikið og fundist hefur munur á framkvæmd hreyfinga á milli kynja og ákveðnir þættir verið skilgreindir sem kynbundnir áhættuþættir fyrir íþróttameiðslum á neðri útlimum. Algengt er að nota fallhopp í hreyfilýsingarrannsóknum á áhættuþáttum fyrir meiðslum á neðri útlimum þrátt fyrir að yfirleitt verði meiðsli þegar íþróttamaður lendir á öðrum fæti úr stökki eða skiptir snöggt um stefnu. Fáar rannsóknir hafa kannað hvort sömu eða aðrar upplýsingar fáist þegar fallhopp og gabbhreyfingar eru bornar saman. Mjaðmavöðvar stýra stöðu og stefnu neðri útlima í íþróttahreyfingum og hafa þannig áhrif á hvernig kraftar og vægi hafa áhrif á liðina. Fáar rannsóknir hafa hins vegar kannað áhrif styrks mjaðmarvöðva á stöðu neðri útlima í hreyfingum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort munur væri á því hvernig börn 9-12 ára framkvæmdu fallhopp og gabbhreyfingar og hvort styrkur mjaðmavöðva tengdist framkvæmdinni. \nAðferðir: Þátttakendur voru 162 íþróttamenn (94 stelpur, 68 strákar, aldur 9-12) sem æfðu handbolta eða fótbolta með íþróttaliðum á stór-Reykjavíkursvæðinu. Allir þátttakendur voru mældir við fallhopp og gabbhreyfingar með 8 myndavéla þrívíddarhreyfigreiningarbúnaði og kraftplötum í gólfi. Einnig var stöðuvinnustyrkur fráfærsluvöðva og útsnúningsvöðva mjaðma mældur með kraftmæli. Hornstaða neðri útlima var mæld í þykktarsniði, breiðskurðar-, og dýptarskurðarsniði við fyrstu snertingu við lendingu í fallhoppi og gabbhreyfingum og hvert plan svo borið saman með fjölþátta dreifigreiningu (anova) á milli kynja, hliðar og athafnar (fallhopp og gabbhreyfing). Að lokum var stöðuvinnustyrkur mjaðmarvöðva (Nm) borinn saman við hornstöður og áhrif könnuð. \nNiðurstöður: Við lendingar úr fallhoppi var ekki marktækur munur á milli kynja á mjaðmarbeygju en við fyrstu snertingu í gabbhreyfingum reyndust strákar lenda með 6° meiri beygju í mjöðmum en stelpur (víxlhrif, P=0,001). Ekki voru tölfræðilega marktæk víxlhrif á milli kynja, hliðar eða athafnar fyrir hnébeygju. Í breiðskurðarsniði mjaðmar var samhverfa hjá stelpum við lendingu bæði í fallhoppi og gabbhreyfingum, strákar voru aðeins samhverfir í fallhoppum en svo með marktækt aukna fráfærslu í vinstri mjöðm við gabbhreyfingar (þrívíð víxlhrif, P<0,0001). Í hné lentu strákar með aukna fráfærslu í hné við lendingar í fallhoppum á meðan stelpur voru nálægt núllstöðu en við gabbhreyfingar voru bæði kyn með um 1,5° fráfærslu í hné við fyrstu snertingu (víxlhrif, P<0,0001). Í þverskurðarsniði mjaðma voru stelpur nokkuð samhverfar í mjöðmum í bæði fallhoppum og gabbhreyfingum á meðan strákar voru aðeins samhverfir í fallhoppum en mismunandi á milli hliða í gabbhreyfingum eða um 3° innsnúningur á hægri hlið en 6° á vinstri hlið (þrívíð víxlhrif, P<0,0001). Tölfræðilega marktæk þrívíð víxlhrif fundust á inn-/útsnúningsstöðu hnjá við fallhopp og lentu bæði kyn með útsnúning í hné (strákar -7°, stelpur -6°) en við gabbhreyfingar lentu strákar aðeins með -1,5° útsnúning í hné á meðan stelpur lentu með -4,5° útsnúning (P<0,0001). \nUmræða og ályktanir: Heilt yfir virðist samræmi í því hvernig 9-12 ára strákar og stelpur undirbúa hreyfingar, en með undantekningum þó. Kynbundinn munur er á framkvæmd gabbhreyfinga sem hefði ekki komið fram ef einungis hefði verið notast við fallhopp sem mælingu.
Source: Skemman
Author: Haukur Már Sveinsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039147833
