Work

„Maður þarf að gera eitthvað, það er alveg ljóst...“ : reynsla grunn- og framhaldsskólastjóra af vinnutengdri streitu kennara.

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Athygli fræðafólks og almennings beinist í auknum mæli að streitu á vinnumarkaði, ekki síst hjá þeim starfsstéttum sem eiga í miklum samskiptum í vinnunni eins og kennurum. Niðurstöður rannsókna sýna að grunn- og framhaldsskólakennarar upplifa vinnutengda streitu sem getur haft neikvæðar afleiðingar í för með sér bæði fyrir viðkomandi einstakling og þá stofnun sem hann starfar við. Skólastjórar bera ábyrgð á skólastarfi, menntun og velferð nemenda og farsælum og árangursríkum kennsluháttum kennara. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á reynslu og viðhorf íslenskra grunn- og framhaldsskólastjóra af vinnutengdri streitu kennara, birtingarmynd streitunnar og streituvalda í störfum þeirra. Það er jafnframt markmið rannsóknarinnar að draga fram þá verndandi þætti sem vinna gegn streituvöldum og skoða hvað getur skapað jafnvægi á milli streituvalda og verndandi þátta til hagsbóta fyrir kennara, nemendur, skólastjóra og skólasamfélög. Reynsla grunn- og framhaldsskólastjóra af málefninu hefur lítið verið rannsökuð á Íslandi og er tilgangur þessarar rannsóknar að varpa ljósi á mögulegar leiðir til framþróunar og úrbóta. \nTíu skólastjórar tóku þátt í rannsókninni, fimm konur og fimm karlar, fimm grunnskólastjórar og fimm framhaldsskólastjórar. Notuð var eigindleg aðferðafræði og hálf-opin viðtöl tekin við þátttakendur. \nMeginniðurstaða rannsóknarinnar var að viðmælendum þótti málefnið mikilvægt og að grípa þurfi til aðgerða til að sporna gegn vinnutengdri streitu kennara. Skólastjórar fá að vita af vinnutengdri streitu kennara of seint til þess að geta brugðist við með markvissum hætti. Streituvalda, verndandi þætti gegn streitu og birtingarmynd streitu er að finna í hvers kyns samskiptum og skólamenningu. Ekki er hægt að líta fram hjá persónubundnum eiginleikum kennara og skörun einkalífs og vinnu þegar vinnutengd streita kennara er skoðuð. Jafnvægi finnst með samspili margra þátta, meðal annars viðhorfi stjórnenda, styðjandi stjórnun og menningu, ábyrgð einstaklinga á því að nýta sér jákvæðar bjargir sem vinna gegn streitu og efla jákvæða persónulega eiginleika.
Source: Skemman
Author: Ólöf Ása Benediktsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039206205
Cites: 65
Cited by:
Related to: 10