Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð fjallar um kulnun foreldra fatlaðra barna. Markmið höfunda var að fræðast um streitu og kulnun og þá sérstaklega kulnun í foreldrahlutverkinu. Einnig þótti höfundum mikilvægt að skoða hvaða þættir það eru sem leitt geta til kulnunar. Fjallað verður um hver munurinn er á kulnun í starfi og kulnun í foreldrahlutverkinu. Höfundar skoðuðu rannsóknir og fræðigreinar um kulnun og streitu hjá foreldrum en sú nálgun er frekar nýleg þar sem kulnun hefur gjarnan verið tengd við starf. Höfundar kynntu sér helstu einkenni sem geta birst hjá foreldrum fatlaðra barna sem þjást af steitu og kulnun. Einkennin geta verið líkamleg, andleg og félagsleg. Þau eru á borð við þreytu, kvíða, pirring, andleysi og tilfinningalegt ójafnvægi. Helstu niðurstöður þeirra rannsókna sem höfundar kynntu sér leiddu í ljós að meiri líkur voru á kulnun og streitu hjá foreldrum fatlaðra barna en ófatlaðra barna. Sá þáttur sem helst þótti leiða til kulnunar hjá foreldrum fatlaðra barna var skortur á stuðning. Fram kom að stuðningur, bæði utanaðkomandi sem og stuðningur frá fjölskyldu skipti öllu máli fyrir foreldra fatlaðra barna. Höfundar lögðu áherslu á að draga raddir foreldra fram í ritgerðinni. Raddir foreldra komu úr ýmsum áttum og styðja þær við helstu niðurstöður um hve mikilvægur stuðningur er fyrir foreldra fatlaðra barna.
Source: Skemman
Authors: Anna Dögg Sigurjónsdóttir, Ingunn Embla Kjartansdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039229726
