Work

Líðan foreldra á meðgöngu í kjölfar fyrri missis

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Sagt er að gleði og sorg séu systur. Að missa barnið sitt á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu er átakanlegur lífsviðburður sem skilur eftir sig sorg sem að getur verið langvinn. Stór hluti foreldra kýs að reyna aftur að eignast barn fljótlega og eru á sama tíma að syrgja látna barnið sitt og gleðjast yfir væntanlegu barni. Ljósmæður eru aðal umönnunaraðili væntanlegra foreldra sem að þurfa einstaklingsmiðaða umönnun og þurfa þær að hafa góða innsýn, reynslu og þjálfun til að geta veitt sem besta þjónustu. \nTilgangur þessara fræðilegu samantektar var að fá innsýn í tilfinningar væntanlegra foreldra á meðgöngu eftir fyrri reynslu af missi og kanna hverjar eru helstu þarfir þeirra á næstu meðgöngu. Markmið verkefnisins var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver eru helstu áhrif fyrri missis á meðgöngu á næstu barneignareynslu og líðan foreldra? Hvernig geta ljósmæður stutt við og bætt líðan foreldra á meðgöngu í kjölfar missis? Fræðilegra heimilda var safnað í gegnum Pubmed og Google Scholar. Í heildina voru notaðar 19 ritrýndar erlendar fræðigreinar og greinar úr íslenskum fagritum auk klínískra leiðbeininga og upplýsinga úr fæðingarskrá Landspítalans. Greinarnar voru alla jafna frá árunum 2013-2018. \nNiðurstöður fræðilegu samantektarinnar leiddi í ljós að væntanlegir foreldrar glíma við ýmsar tilfinningar á meðgöngu eftir fyrri missi. Þau lýsa tilfinningum eins og þunglyndi, kvíða og ótta um að sagan endurtaki sig. Þau kunna að meta aukið eftirlit en mesta þörfin er að hafa gott aðgengi að ljósmóður á meðgöngunni og að þau upplifi að hlustað sé á þau og tekið sé tillit til þeirra þarfa sem þau hafa á meðgöngunni. Góð upplifun af meðgöngunni og að foreldrarnir finni fyrir öryggi, getur skilað sér í betri líðan bæði á meðgöngunni og eftir fæðinguna og leitt til betri útkomu fyrir fjölskylduna. \nSamfelld þjónusta er ekki í boði á Íslandi nema að litlu leyti en er þjónusta sem að myndi gagnast þessum hópi vel. Best væri að ljósmæður gætu sinnt verðandi foreldrum á meðgöngu, fæðingu og sængurlegu sem að myndi skila sér í persónulegri þjónustu og meiri öryggi og vellíðan fyrir foreldrana. \nLykilorð: Meðganga, andvana fæðing, meðganga eftir missi, áfallastreituröskun, hugræn atferlismeðferð, samfelld þjónusta.
Source: Skemman
Author: Lilja Björg Sigurjónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039255170
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10