Work

„Mér finnst bara að allar konur hafi áfallasögu í neyslu“ : reynsla kvenfanga í íslensku fangelsi af meðferðarúrræðum innan og utan fangelsis

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur: Konur sem hafa afplánað refsidóma hafa flestar, ef ekki nær allar, einhverja áfallasögu að baki. Þær glíma við flókinn vanda sem einkennist af vímuefnanotkun og afleiðingum hennar. Lítið er vitað um reynsluheim þeirra í íslenskum fangelsum og af meðferðarúrræðum innan og utan fangelsis. Tilgangur rannsóknarinnar er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeirri reynslu þeirra. \n \nAðferð: Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn tóku níu konur á aldrinum 20-40 ára þátt. Þær áttu allar við vímuefnavanda að stríða og höfðu allar leitað sér meðferðar við honum. Tekin voru tvö viðtöl við allar nema tvær, samtals 16 viðtöl. \n \nNiðurstöður: Konurnar höfðu allar leitað sér aðstoðar vegna vímuefnavanda fyrir afplánun. Þær höfðu leitað í flest meðferðarúrræði sem í boði voru hér á landi, eins höfðu þær leitað sér vímuefnameðferðar erlendis. Flestar konurnar notuðu vímuefni um æð og glímdu við heilsufarsvanda því tengdu. Konurnar höfðu flestar upplifað einhverskonar áföll í æsku og/eða á fullorðinsárum. Var vímuefnaneyslan einhverskonar bjargráð til að flýja eða lifa af erfiðar aðstæður. Vímuefnaneyslunni fylgdi síðan mikil vanlíðan, depurð og kvíði. Meirihluti þeirra voru mæður og höfðu upplifað að missa börn sín frá sér vegna vímuefnanotkunarinnar. Konurnar höfðu flest allar ósk um að unnið væri með áföll í vímuefnameðferð þar sem þær töldu vímuefnaneyslu sína vera nátengda þeim áföllum sem þær höfðu upplifað. Þeim fannst einnig mikilvægt að virkara meðferðarstarf væri í fangelsum og kvörtuðu undan iðjuleysi sem þeim fannst ekki einungis erfitt heldur líka auka vanlíðan þeirra og fíkn í vímuefni. \n \nÁlyktun: Rannsókn þessi sýnir að mikilvægt er að nýta viturlegar þann tíma sem konur afplána refsidóm t.d. með því að nýta hann til að veita meðferð við vímuefnavanda og við þeim áföllum sem þær hafa orðið fyrir, bæði sem börn og fullorðnar konur. \n \nLykilorð: konur, fangelsi, áföll, vímuefnavandi, kvenfangi, fyrirbærafræði, viðtöl.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039530614
Cites: 48
Cited by:
Related to: 10