Work

Meðferðarþolinn háþrýstingur - Algengi á Íslandi og hlutfall sjúklinga sem fá meðferð í samræmi við klínískar leiðbeiningar

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Meðferðarþolinn háþrýstingur (e. resistant hypertension; RHT) er skilgreindur sem viðvarandi háþrýstingur þrátt fyrir meðferð á þremur eða fleiri blóðþrýstingslyfjum þar af einu thíazíði. Sjúkdómurinn er tengdur verri horfum. Þrátt fyrir það hefur enn ekki tekist að lýsa fyrirbærinu á fullnægjandi hátt. Markmið þessarar rannsóknar var að meta algengi RHT á Íslandi og kanna hlutfall sjúklinga sem fékk meðferð í samræmi við klínískar leiðbeiningar. \nAðferðir: Fyrir þessa þversniðsrannsókn voru sótt gögn í REFINE (n = 6930, aldursbil 20-73) og AGES (n = 5716, aldursbil 66-96) gagnagrunna Hjartaverndar. Þátttakendur voru skilgreindir með tilliti til blóðþrýstingsmælingar og lyfja sem þeir tóku á tíma athugunar. Aldursstöðlun var framkvæmd á REFINE þýðinu. \nNiðurstöður: algengi RHT á meðal einstaklinga í blóðþrýstingsmeðferð var 9,1% (n = 168) í REFINE og 15,8% (n = 579) í AGES. Algengi var marktækt hærra í eldri aldursflokkum. 95% tilfella greindust í einstaklingum eldri en 50 ára (REFINE). Þar sem skörun var á aldri milli þýðanna var algengið sambærilegt. 31% RHT sjúklinga í REFINE tóku spironolactone og 51% í AGES í samræmi við meðferðarleiðbeiningar. \nAlgengi RHT á Íslandi var í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna. Rannsóknir hafa sýnt að spironolactone lækkar þrýsting og bætir horfur þessara sjúklinga og því ætti hlutfall sjúklinga á lyfinu að vera hærra. Rannsóknin takmarkaðist af því að sólarhringsblóðþrýstingsmælingar og upplýsingar um meðferðarheldni og skammta lágu ekki fyrir og því var algengi RHT líklega ofmetið hér.
Source: Skemman
Author: Kristján Harðarson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039624213
Cites: 52
Cited by:
Related to: 10