Námsmat á skilum skólastiga : tilgangur, framkvæmd og nýtt matskerfi
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Samkvæmt ákvæðum gildandi aðalnámskráa fyrir grunn- og framhaldsskóla er gert ráð fyrir markvissri samfellu milli skólastiganna tveggja hvað snertir nám, markmið, hæfniviðmið, kennsluhætti og námsmat. Mat á árangri og framförum nemenda í grunn- og framhaldsskóla skal vera reglubundinn þáttur í öllu skólastarfi. Námsmati er ætlað að vera hluti af náms- og kennsluferlinu og skipulagt sem mest í samræmi við námskrá, hæfniviðmið og viðfangsefni nemenda. Meginmarkmið með þessu verkefni var að rannsaka námsmat út frá sjónarhóli skólastjórnenda og kennara í grunn- og framhaldsskóla. Lögð var áhersla á að fá innsýn í reynslu, skilning og viðhorf skólastjórnenda og kennara til námsmats í þeim tilgangi að greina hvað reyndist vera líkt og hvað ólíkt með tilgangi, framkvæmd og fyrirkomulagi námsmats á skólastigunum tveimur. Einnig var tilgangurinn að kanna afstöðu viðmælenda til nýs matskerfis sem beita þarf við lok skyldunáms og hvort samræmis gætti í einkunnagjöf grunnskóla sem gefa framhaldsskólum upplýsingar um hæfni nemenda við inntöku. Rannsóknin er eigindleg þar sem hún samanstendur af tíu hálf-opnum einstaklingsviðtölum. Notast var við tilgangsúrtak (e. purposive sampling) við val á þátttakendum af því valdir voru viðmælendur sem sérstaklega höfðu látið sig varða hið nýja matskerfi og vakið athygli í umræðu um það. Niðurstöður benda til þess að tilgangur og fyrirkomulag námsmats á milli skólastiganna sé með líku sniði. Hins vegar virðast skólastjórnendur og kennarar, sem tóku þátt í rannsókninni, misánægðir með hið nýja námsmatskerfi. Viðmælendur, hvort sem voru kennarar eða stjórnendur, og á hvoru skólastiginu sem var, töldu að ekki gætti samræmis á milli grunnskóla í einkunnagjöf sérstaklega eftir að hæfnieinkunnir voru teknar upp hér á landi. Það vakti óneitanlega upp spurningar um eðlismun hins nýja matskerfis annars vegar og hefðbundins lokamats, einkum samræmdra prófa, hins vegar.
Source: Skemman
Author: Dagný Rut Pétursdóttir 1986
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039631143
