Mikilvægi samskiptahæfni barna : hvatning til starfsfólks frístundaheimila
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Frístundaheimili eru tilvalinn vettvangur til að efla samskiptahæfni barna og því skiptir miklu máli fyrir starfsfólk frístundaheimila að hafa þá þekkingu sem þarf til að efla samskiptahæfni. Markmið verkefnisins er að upplýsa starfsfólk frístundaheimila um mikilvægi samskiptahæfni barna og kynna þeim fyrir ákveðnum samskiptaaðferðum til að efla samskiptahæfni. \nÞetta lokaverkefni samanstendur af fjórum fræðslumyndböndum og fræðilegri greinargerð. Í fyrsta myndbandinu Mikilvægi samskiptahæfni barna er farið yfir skilgreiningu á samskiptahæfni og hvaða áhrif aukin samskiptahæfni hefur fyrir börn. Því myndbandi fylgja þrjú styttri myndbönd sem fjalla um leiðir sem starfsfólk á frístundaheimilum geta nýtt sér til þess að efla samskiptahæfni og þær leiðir eru taplausa aðferðin, virk hlustun og ég-boð. Greinargerðin fjallar um mikilvægi samskiptahæfni barna og þær leiðir sem frístundaheimili geta nýtt sér til þess að efla hana. Fjallað er um markmið og mikilvægi frístundaheimila sem og hlutverk starfsfólks á frístundaheimilum. Einnig er fjallað um helstu þætti sem tengjast samskiptum. Niðurstöður sýna að aukin samskiptahæfni eykur líkur á velgengni barna í námi og starfi seinna meir. Rannsóknir hafa einnig sýnt að jákvæð samskipti barna milli jafningja geta aukið sjálfstraust og sjálfsmynd þeirra og einnig haft jákvæð áhrif á líðan. Rannsóknir hafa sýnt að myndbönd skila góðum árangri þegar miðla skal fræðslu um ákveðið málefni. Það er því okkar von að þessi myndbönd skili árangri í skipulögðu frístundastarfi.
Source: Skemman
Authors: Anna Guðrún Alexandersdóttir, Gísli Eyjólfsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: children's communication, communication skills, daycare centers, daycare staff, communication tools, positive reinforcement, active listening, self-disclosure, child development, child well-being, parent-child communication, children's self-confidence, children's self-esteem, children's self-regulation, children's creativity, children's curiosity, children's motivation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039767147
